Fara í efni  

Menningar- og safnanefnd

140. fundur 11. desember 2024 kl. 16:30 - 19:20 í Klöpp á Dalbraut 1
Nefndarmenn
  • Guðríður Sigurjónsdóttir formaður
  • Ella María Gunnarsdóttir varaformaður
  • Einar Örn Guðnason aðalmaður
  • Martha Lind Róbertsdóttir aðalmaður
  • Jóhannes Geir Guðnason aðalmaður
Starfsmenn
  • Vera Líndal Guðnadóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Vera Líndal Guðnadóttir Verkefnastjóri menningar- og safnamála
Dagskrá

1.Styrkir til menningartengdra verkefna 2025

2412030

Menningar- og safnanefnd fer yfir innsendar umsóknir til menningarstyrkja hjá Akraneskaupstað fyrir árið 2025.
Menningar- og safnanefnd fer yfir styrkumsóknir til menningarverkefna.
Á fundi menningar- og safnanefndar þann 11. desember 2024 hófst úrvinnsla umsókna til menningatengdra verkefna fyrir árið 2025.

Alls bárust 25 umsóknir og heildar umsóknarfjárhæð var 13.956.300 kr en til úthlutunar voru 3.520.000 kr.

Nefndin hefur valið 19 verkefni sem hljóta styrk að þessu sinni. Tillögur verða sendar til samþykktar hjá Bæjarráði.

Nefndin þakkar fyrir áhugann og fjölda umsókna til menningartengdra verkefna 2025.

Við úrvinnslu var horft til áherslna menningarstefnu Akraneskaupstaðar 2018-2023.
Jafnframt var lögð áhersla á að styðja við verkefni og viðburðahald sem eru til þess fallin að efla bæjarandann, hvetja til fjölbreyttrar listsköpunar, styðja við menningarlegt uppeldi og/eða auðga menningarlíf bæjarins. Einnig hafði gæði umsóknar og fylgigagna áhrif á niðurstöður þessar.

Menningarstyrkir árið 2025 verða kynntir í frétt á heimasíðu Akraneskaupstaðar.

Verkefnastjóra er falið að koma tillögum nefndarinnar um styrkveitingar til afgreiðslu bæjarráðs sem fer með endanlega ákvörðun úthlutunarinnar.

2.Bíóhöllin - Rekstrarsamningur 2023

2310110

Menningar- og safnanefnd vísar málinu til samþykktar/afgreiðslu hjá Bæjarráði.
Á 250. fundi Skóla- og frístundaráðs tók ráðið undir bókun menningar- og safnanefndar frá fundi 139 um framlengingu samnings við Vini hallarinnar um eitt ár.

Málinu vísað til samþykktar hjá bæjarráði.

3.Jólatrésskemmtun á Akranesi 2024

2411082

Verkefnastjóri fer yfir vel lukkaða jólatrésskemmtun á Akratorgi.
Menningar- og safnanefnd fagnar góðri þátttöku bæjarbúa á jólatrésskemmtun Akraneskaupstaðar. Sérstakar þakkir fær fjöliðjan fyrir einstaka jólatónleika í Gamla landsbankahúsinu og Útvarp Akranes fyrir metnaðarfulla dagskrá að vanda.

Nefndin vekur athygli á fjölbreyttum viðburðum sem í boði verða á vegum ýmissa aðila á aðventunni og nýju ári, helstu upplýsingar má finna á www.skagalif.is - Sjón er sögu ríkari.

4.Hátíðarsýning Ljósmyndasafns Akraness

2411141

Verkefnastjóri sýnir menningar- og safnanefnd hátíðarsýningu Ljósmyndasafns Akraness.
Menningar- og safnanefnd lýsir ánægju með nýja og metnaðarfulla ljósmyndasýningu sem staðsett er við Akratorg. Bæjarbúar eru hvattir til þess að gera sér ferð niður á Akratorg og bera sýninguna augum sem og njóta nýrra fallegra jólaskreytinga kringum torgið.

Nefndin þakkar Veru Líndal Guðnadóttur, verkefnastjóra menningarmála og Erlu Dís Sigurjónsdóttir, forstöðumanni Héraðsskjalasafns fyrir vel heppnaða sýningu.

5.Listaverkakaup 2025

2412118

Menningar- og safnanefnd ræðir möguleika á listaverkakaupum fyrir árið 2024.
Menningar- og safnanefnd hefur mótað tillögu um kaup á listaverkum fyrir Akraneskaupstað. Verkefnastjóra falið að ganga frá kaupum í samræmi við umræður á fundi.

Fundi slitið - kl. 19:20.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00