Menningarmála- og safnanefnd (2000-2008)
35. fundur menningarmála- og safnanefndar var haldinn á skrifstofu sviðsstjóra, Stillholti 16-18, 7. apríl 2005 og hófst fundurinn kl. 10:00.
Mætt:
Hrönn Ríkharðsdóttir, formaður
Sigríður Gróa Kristjánsdóttir
Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir
Einnig sat Halldóra Jónsdóttir bæjarbókavörður fundinn sem og Helga Gunnarsdóttir sviðsstjóri menningar- og fræðslusviðs, sem ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Fjölskyldustefna.
Nefndarmenn ræddu um drög að fjölskyldustefnu og var sviðsstjóra falið að koma athugasemdum á framfæri við stýrihóp um mótun fjölskyldustefnu.
2. Málefni Bókasafns Akraness.
Halldóra lagði fram ársskýrslu vegna ársins 2004. Helsta verkefni ársins var innleiðing á nýju bókasafnskerfi sem tekið var í notkun í nóvember.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 12:00