Menningarmálanefnd (2013-2014)
Dagskrá
1.Erindisbréf fyrir menningarmálanefnd - drög
1304175
Farið yfir drög að erindisbréfi nefndarinnar.
2.Menningarverðlaun Akraneskaupstaðar 2013
1309004
Drög að reglum um menningarverðlaun Akraneskaupstaðar kynnt.
Nefndin fór yfir drögin. Verkefnstjóra falið að gera þær breytingar sem um var rætt á fundinum og senda bæjarráði reglurnar til samþykktar.
3.Vökudagar 2013
1309003
Drög að dagskrá Vökudaga kynnt. Þá fjallar nefndin um hvernig hægt sé að auka aðkomu ungs fólks að hátíðahöldum svo sem Vökudögum.
- Verkefnisstjóri lagði fram drög að dagskrá Vökudaga. Nú þegar er dagskráin að verða þétt skipuð. Hægt er að skrá viðburði til 10. október 2013 hjá verkefnisstjóra.
- Nefndin minnir á tillöguglugga vegna menningarverðlauna sem opinn er til 10. október 2013 á heimasíðu Akraneskaupstaðar.
- Verkefnisstjóri lagði fram drög að bréfi sem senda á, á nemendafélög grunn- og framhaldsskóla á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit til að hvetja til þátttöku á Vökudögum.
- Verkefnistjóra falið að hafa samband við menningar- og atvinnuþróunarnefnd Hvalfjarðarsveitar vegna Vökudaga.
4.Menningarmálanefnd - fjárhagsáætlun 2014
1309214
Drög að fjárhagsáætlun lögð fram.
Verkefnisstjóra og formanni falið að koma áherslum nefndarinnar á framfæri til bæjarstjóra.
Fundi slitið - kl. 18:15.
Nefndin fór yfir drög að erindisbréfi menningarmálanefndar Akraneskaupstaðar. Nefndin felur verkefnisstjóra að lagfæra drögin í samræmi við umræður á fundinum í samráði við framkvæmdastjóra stjórnsýslu- og fjármálasviðs. Nefndin stefnir að því að afgreiða erindisbréfið á næsta fundi sínum.