Ritnefnd um sögu Akraness (2001-2012)
47. fundur. Ár 2002, laugardaginn 16. nóvember kom ritnefnd um sögu Akraness saman til fundar á skrifstofu bæjarstjóra og hófst hann kl. 10:30.
______________________________________________________________
Mættir: Gísli Gíslason,
Ólafur J. Þórðarson,
Leó Jóhannesson.
Auk þeirra söguritari, Gunnlaugur Haraldsson.
______________________________________________________________
1. Farið var yfir stöðu mála, en Gunnlaugur er að vinna efni til ársins 1941 og stefnir að því að sá þáttur verði tilbúinn í apríl eða maí, en vinnunni á ljúka í maí 2004, en þá á eftir að skrifa forspjall frá landnámi.
2. Rætt var um kaflana þróun sjávarútvegs á 18. öld, eignarhald á jörðum á Akranesi 1706-1800, sjósókn Akurnesinga á 18. öld, uppreisnarástand á Akranesi og þróun byggðar og mannfjölda.
3. Ákveðið að ljúka yfirferð á efni 19. aldar á næsta fundi, sem ákveðið er að halda laugardaginn 30. nóvember n.k. 10:30.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 11:30.
Gísli Gísason (sign)
Ólafur J. Þórðarson (sign)
Leó Jóhannesson (sign)
Gunnlaugur Haraldsson (sign)