Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)
19. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 17. mars 2003 kl. 15:30.
______________________________________________________________
Mættir á fundi: Magnús Guðmundsson formaður, Lárus Ársælsson, Kristján Sveinsson, Ingibjörg Haraldsdóttir varamaður.
Auk þeirra voru mættir Þorvaldur Vestmann Magnússon sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs, Ólöf Guðný Valdimarsdóttir skipulagsfulltrúi og Hrafnkell Á Proppé umhverfisfulltrúi, sem ritaði fundargerð.
______________________________________________________________
1. Olíudreifing ehf, skipting lóðarinnar að Hafnarbraut 3A Mál nr. SU030016
660695-2069 Olíudreifing ehf., Gelgjutanga, 104 Reykjavík
Áður frestuðu erindi frá Olíudreifingu ehf. dags. 17. febrúar 2003 vegna skiptingu lóðarinnar að Hafnarbraut 3A á Akranesi. Ýmis gögn varðandi málið fylgja erindinu.
Umrædd lóð er ekki nema að hluta til í samræmi við gildandi deiliskipulag. Skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemd við skiptingu hennar.
2. Flatahverfi, klasi 9, deiliskipulagsbreyting Mál nr. SU030011
090157-2489 Runólfur Þór Sigurðsson, Leynisbraut 37, 300 Akranesi
Lögð fram breytt tillaga að deiliskipulagsbreytingu í Flatahverfi, klasa 9.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrirliggjandi deiliskipulagsbreytingu og leggur til að breytingin verði auglýst skv. 25. gr. skipulags og byggingarlaga. Gengið verði frá endanlegum uppdráttum í samræmi við fyrri bókanir og í samráði við skipulagsfulltrúa.
3. Skarðsbraut 6, stækkun leikskóla (000.671.01) Mál nr. SU020016
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Stækkun leikskólans Vallarsel.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að farið verði með stækkun leikskólans í grenndarkynningu skv. 7.mgr. 43.gr. skipulags- og byggingarlaga þar sem ekkert deiliskipulag er í gildi fyrir svæðið. Nefndin leggur áherslu á að málinu verði hraðað og felur skipulagsfulltrúa að fylgja málinu eftir.
4. Skólabraut 2-4, innkeyrsla Mál nr. SU030024
430299-2719 Útlit ehf., Skólabraut 2-4, 300 Akranesi
Bréf Þorsteins Vilhjálmssonar dags. 16. febrúar 2003 f.h. Útlits ehf. Skólabraut 2-4, þar sem óskað er eftir að fá innkeyrslu meðfram húsinu að norðan að innkeyrsludyrum á suðurhlið.
Málið kynnt fyrir nefndinni. Skipulags- og umhverfisfulltrúa falið að skoða málið og leggja tillögu fyrir nefndina.
5. Lokun Sunnubrautar, Mál nr. SU030006
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Erindi frá bæjarstjóra dags. 16. janúar 2003 vegna lokunar Sunnubrautar við Akurgerði. Leitað hefur verið álits íbúa og lögregluyfirvalda um að gera Sunnubraut að einstefnugötu.
Skipulags- og umhverfisnefnd hefur leitað álits og leggur til að akstursstefna á Sunnubraut verði áfram í báðar áttir.
6. Umferðarmál, bréf Mál nr. SU030013
131034-4909 Huldar Ágústsson, Laugarbraut 25, 300 Akranesi
Áður frestað erindi. Bréf frá Huldari Ágústssyni vegna umferðarvandamála við Akurgerði.
Málið hefur verið kynnt lögregluyfirvöldum og mun verða skoðað í samvinnu við þau.
7. Stefnumótun Jaðarsbakkasvæðis og Langasands, skipan fulltrúa í starfshóp Mál nr. SU030023
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Erindi bæjarráðs, dagsett 28.02.2003, vegna starfshóps um stefnumótun Jaðarbakkasvæðis og Langasands. Óskað er eftir að skipulags- og umhverfisnefnd skipi fulltrúa.
Skipulags- og umhverfisnefnd skipar Eddu Agnarsdóttur sem fulltrúa í starfshópinn.
8. Aðalskipulag Akraness, Staða Mál nr. SU020030
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Skipulagsfulltrúi fer yfir stöðu mála.
Skipulags- og umhverfisnefnd stefnir að íbúaþingi laugardaginn 26. apríl nk. í tengslum við endurskoðun aðalskipulags. Samþykkt að halda sérstakan fund um aðalskipulagsgerð mánudaginn 24. apríl nk.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:30