Skipulagsnefnd (2000-2002)
87. fundur skipulagsnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs að Dalbraut 8, 4. september 2001 kl. 13:00.
Mættir á fundi. Jóhannes Snorrason formaður,
Lárus Ársælsson,
Sigurlína G. Júlíusdóttir,
Heiðrún Janusardóttir varamaður.
Auk þeirra Þorvaldur Vestmann sviðstjóri tækni- og umhverfissviðs, Magnús Þórðarson byggingar- og skipulagsfulltrúi. Fundarritari var Hafdís Sigurþórsdóttir.
1. Steinsstaðaflöt 6 og 8., Mál nr. SN010024
090157-2489 Runólfur Þór Sigurðsson, Leynisbraut 37, 300 Akranesi
Breyting á skipulagi.
Með vísan til fundargerðar skipulagsnefndar 19. júní 2001 er skipulags- og byggingarfulltrúa falið að fara yfir stöðu mála með lóðarhafa.
2. Flatahverfi, deiliskipulag klasa 7-8., Klasi 7-8. Mál nr. SN010016
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Hjördís og Dennis mæta á fundinn kl. 13:30 og kynna drög að deiliskipulagi.
Hjördís og Dennis kynntu fyrstu hugmyndir að deiliskipulagi í klasa 7 og 8
3. Garðabraut 2, breyting. (000.681.01) Mál nr. SN010036
Bréf Runólfs Þ. Sigurðssonar fyrir hönd Sjóvá-almennar ehf. og Ægisbraut ehf. um álit nefndarinnar á fyrirhugaðri byggingu á ofangreindri lóð. Meðfylgjandi er riss af lóðinni.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í framkomna hugmynd um byggingu allt að 3. hæða húss miðað við stækkun á lóð fram að Garðabraut og nýtingarhlutfall lóðar að hámarki 0,75. Framkomin hugmynd kallar á breytingu á deiliskipulagi.
4. Ægisbraut, deiliskipulag. Mál nr. SN010004
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Greinargerð íbúa í nágrenni Ægisbrautar um deiliskipulag svæðisins, ásamt meðfylgjandi undirskriftalista.
Skipulagsnefnd þakkar framkomnar ábendingar og leggur til að þær verði nýttar sem innlegg í upphaf vinnu við deiliskipulag við Ægisbraut. Skipulagsnefnd stefnir að því að halda kynningarfund þegar fyrstu drög að deiliskipulagi liggja fyrir í október 2001.
5. Breyting á reglulegum fundartíma skipulagsnefndar
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu nefndarinnar að breyta fundartíma nefndarinnar þannig að reglulegir fundir skipulagsnefndar verði haldnir kl. 15:00 1. og 3. mánudag í hverjum mánuði.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 16:20.