Skólanefnd (2000-2008)
76. fundur skólanefndar Akraness haldinn í bæjarþingsalnum miðvikudaginn 21. maí 2008 kl. 18:00.
Mætt á fundi: Eydís Aðalbjörnsdóttir, formaður
Sveinn Kristinsson,
Þórður Guðjónsson
Björg Jónsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra
Ásta Huld Jónsdóttir, fulltrúi leikskólastarfsfólks
Sigurveig Kristjánsdóttir, fulltrúi grunnskólakennara
Hjördís Grímarsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna
Fundinn sat einnig
Formaður bauð Þórð Guðjónsson velkominn en hann er nýr fulltrúi í skólanefnd.
Anney Ágústsdóttir sagði frá því að nú væru 37 börn í Skátaseli en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt í vetur. Tveir leikskólakennarar eru við störf auk annarra starfsmanna. Starfið í vetur hefur mótast af umhverfinu sem leikskólinn býður upp á. Skólinn hefur tekið þátt í Brúum bilið og foreldraráðið hefur verið öflugt. Fyrirhugað er að hefja starfið í Akraseli í byrjun ágúst. Í dag gekk leikskólastjóri frá ráðningu aðstoðarleikskólastjóra og verður Margrét Þóra Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri Akrasels. Nú er verið að velja innréttingar og annan búnað í leikskólann. Áherslur í starfinu verða á umhverfismennt og hugrækt m.a. joga. Byrjað verður með fjórar deildir og verður salurinn nýttur fyrir deild fram að áramótum. Búið er að innrita 87 börn í Akrasel. Vel lítur út með starfsmannahald í Akraseli.
Björg Jónsdóttir sagði frá því að starfsmenn hefðu verið 37 í vetur og fjöldi barna í Vallarseli alls 148. Þróunarverkefnið ?Heimspeki og tónlist? hefur verið mjög lifandi í vetur en styrkur fékkst kr. 900.000 frá Þróunarsjóði grunnskóla. Námsefni í lífsleikni ?Stig af stigi? fellur vel að þróunarverkefninu. Einnig kom fram að Vallarsel verður 30 ára á næsta ári. Björg fagnar komu iðjuþjálfa og talmeinafræðings að ráðgjöf við leikskólana. Við leikskólann er laus ein staða um þessar mundir.
Guðbjörg Gunnarsdóttir gerði grein fyrir því að starfsmenn hafa verið 18 í vetur og fjöldi barna 75 í Teigaseli. Skólinn verður 10 ára í haust, 6. september. Afmælisundirbúningur er hafinn m.a. búið að ráðgera leiksýningu. Guðbjörg fór yfir stærstu viðburði skólaársins. Teigasel er ennþá þátttakandi í rannsókn á talnaskilningi leikskólabarna. Guðbjörg gerði m.a. að umtalsefni kosning öryggistrúnaðarmanns fyrir Akraneskaupstað og skipulagsdaga leik- og grunnskóla. Búið er að ákveða námskeið fyrir starfsmenn 20. ágúst.
Innritun.
2. Önnur mál.
Bréf frá leikskólastjóranum í Garðaseli þar sem óskað er eftir heimild til að færa skipulagsdag til 10. október n.k. vegna fyrirhugaðs námskeiðs heilsuleikskóla. Skólanefnd samþykkir þessa breytingu fyrir sitt leyti.
Fleira ekki gert fundi slitið kl. 19:50