Starfshópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja (2010)
2. fundur starfshóps um uppbyggingu íþróttamannvirkja, haldinn í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18, mánudaginn 23. ágúst 2010 og hófst hann kl. 17:00
Fundinn sátu:
Einar Benediktsson, formaður - fulltrúi S-lista
Hjördís Garðarsdóttir, fulltrúi V-lista
Dagný Jónsdóttir, fulltrúi B-lista
Gunnar Sigurðsson, fulltrúi D-lista
Sturlaugur Sturlaugsson, fulltrúi ÍA
Guðlaug Margrét Sverrisdóttir, fulltrúi ÍA
Jón Þór Þórðarson, fulltrúi ÍA
Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri Framkvæmdastofu.
Fyrir tekið:
1008038 - Íþróttamannvirki, uppbygging | ||
Á fundinn mætti Gunnar B. Borgarsson Arkitekt frá ASK arkitektum og kynnti hann tillögur að tengibygginu og nýrri sundlaug sem unnar voru á árunum 2005-2007. Einar Benediktsson og Gunnar B. Borgarsson munu fara yfir uppfærðar kostnaðartölur. Málið rætt. | ||
|
||
2. |
1008087 - Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA | |
Greinargerð ÍA sem var til grundvallar kynningar á stöðu mála varðandi aðstöðumál aðildarfélaga ÍA. Var kynnt á 66. ársþingi ÍA sem fór fram 15. apríl sl. Úttekt þessi er byggð á samskiptum ÍA við aðildarfélögin á undanförnum árum og er henni ætlað að gefa yfirsýn yfir stöðu mála. | ||
Nefndin felur Framkvæmdastofu að leggja gróft kostnaðarmat á óskir aðildarfélaga ÍA um bætta aðstöðu fyrir félögin. | ||
|
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:30.