Starfshópur um uppbyggingu íþróttamannvirkja (2010)
5. fundur starfshóps um uppbyggingu íþróttamannvirkja, haldinn í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18, fimmtudaginn 14. október 2010 og hófst hann kl. 18:00
Fundinn sátu:
Einar Benediktsson, formaður - fulltrúi S-lista
Hjördís Garðarsdóttir, fulltrúi V-lista
Dagný Jónsdóttir, fulltrúi B-lista
Gunnar Sigurðsson, fulltrúi D-lista
Sturlaugur Sturlaugsson, fulltrúi ÍA
Jón Þór Þórðarson, fulltrúi ÍA
Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri.
Fyrir tekið:
1008087 - Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA | ||
Til viðræðna mætir Sævar Haukdal formaður FIMA til að ræða aðstöðumál félagsins. | ||
Sævar Haukdal fór yfir stöðu og framtíðarsýn fimleiksfélagsins og kynnti hann óskir félagsins um bætta aðstöðu. | ||
|
2. |
1008087 - Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA | |
Grunnur að lokaskýrslu kynntur. | ||
Starfshópurinn telur þörf á að fá upplýsingar um fjárhagsforsendur verkefnisins, til að geta gert raunhæfa forgangsröðun. | ||
|
3. |
1008087 - Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA | |
Áframhald vinnu og umræður um aðstöðumál félaganna. | ||
Starfshópurinn fékk afhent fyrstu drög að skýrslunni til yfirlestrar. Meðlimum starfshópsins falið að koma með á næsta fund hugmyndir um forgangsröðun verkefna. | ||
|
4. |
1008087 - Íþróttamannvirki - aðstöðumál ÍA | |
Bókun frá Gunnari Sigurðssyni. | ||
Ég undirritaður hef að vandlega athuguðu máli tekið ákvörðun um að segja mig úr starfshópi um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akranesi vegna þess að ég tel mig vanhæfan vegna þess að:
Þá hef ég sjálfur verið formaður Knattspyrnufélags ÍA um árabil þannig að í mínum huga er ljóst að allar ákvarðanir sem ég kæmi að í þessum starfshópi verða hugsanlega mistúlkaðar. Akranesi 14. október 2010 Gunnar Sigurðsson | ||
|
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30.