Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
Fundinn sátu:
Kristjana Helga Ólafsdóttir formaður
Hörður Helgason varaformaður
Kristján Sveinsson
Margrét Magnúsdóttir
Hallveig Skúladóttir hjúkrunarforstjóri
Kjartan Kjartansson framkvæmdastjóri
Fyrir var tekið:
1. Vistunarmál
Samþykkt vistun fyrir fjóra einstaklinga, sjá trúnaðarbók.
2. Viðburðaryfirlit
Lagt fram viðburðaryfirlit fyrir tímabilið 19. júní til 20. ágúst 2017.
3. Rekstraryfirlit Höfða 1. janúar til 31. maí 2017
Lagt fram.
4. VinnuStund
Framkvæmdastjóri lagði fram drög að samningi milli Advania og Akraneskaupstaðar um leigu, hýsingu og innleiðningu á VinnuStund hjá Akraneskaupstað og Höfða ásamt kostnaðaráætlun. Lagt fram.
5. Aðild að rammasamningi Ríkiskaupa
Bréf Ríkiskaupa dags. júlí 2017 þar sem tilgreint er nýtt rekstrarform á rammasamningakerfi Ríkiskaupa. Helsta breytingin er að opinberir aðilar sem eru utan A-hluta ríkissjóðs greiða aðildargjald fyrir aðild að rammasamningi. Aðildargjald Höfða fyrir árið 2017 er 620.000 kr.
Stjórn Höfða felur framkvæmdastjóra að kanna hvað önnur hjúkrunarheimili ætla að gera varðandi áframhaldandi þátttöku þar sem ljóst er að um verulegan kostnaðarauka er að ræða.
6) Úttekt á mötuneyti
Stjórn Höfða samþykkir að taka tilboði Rannsóknarþjónustunnar Sýni ehf. í úttekt á matseðli og eldhúsi Höfða.
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17.20