Stjórn Höfða hjúkrunar- og dvalarheimilis
1. Vistunarmál
Staðfest vistun fyrir fimm einstaklinga, sjá trúnaðarbók.
Staða á biðlistum 26.9.2024:
Hjúkrunarrými: 53 einstaklingar.
Hvíldarinnlagnir: 45 einstaklingar.
2. Viljayfirlýsing vegna stækkunar Höfða
Stjórn Höfða fagnar því að skrifað hefur verið undir viljayfirlýsingu um stækkun Höfða úr 75 rýma í 99 rýma hjúkrunarheimili. Stjórn óskar eftir því að eignaraðilar komi að fjármögnun hönnunarkostnaðar svo hægt sé að hefja strax þá vinnu. Framkvæmdastjóra falið að senda erindi til eignaraðila þar að lútandi.
3. Kostnaðaruppgjör vegna verksins „Endurnýjun í 1.áfanga Höfða“
Lagt fram.
Framkvæmdastjóra falið að ganga frá langtímafjármögnun í samráði við eignaraðila.
4. Ferðaþjónusta fyrir aldraða og fatlaða á Akranesi
Í gildi er samningur frá 29.10.2001 milli Höfða og Akraneskaupstaðar um rekstur ferðaþjónustu.
Lagt fram minnisblað framkvæmdastjóra Höfða og sviðsstjóra velferðar- og mannréttindasviðs Akraneskaupstað um núverandi form akstursþjónustu hjá Akraneskaupstað.
5. Fundargerð Starfshóps um starfsemi og rekstur Höfða frá 30.8.2024
Lögð fram.
6. Önnur mál
a) Starfsmannamál
Erindi frá starfmanni Höfða.
Lagt fram.
Afgreiðslu frestað til næsta fundar.
Fleira ekki gert.