Tómstunda- og forvarnarnefnd (2002-2008)
60. fundur tómstunda- og forvarnarnefndar Akraneskaupstaðar var haldinn í fundarherbergi, Stillholti 16 -18, þriðjudaginn 9. ágúst 2006 og hófst hann kl. 17:00.
Mætt á fundi: Hildur Karen Aðalsteinsdóttir, formaður
Sæmundur T. Halldórsson
Sigrún Ósk Kristjánsdóttir
Bjarki Þór Aðalsteinsson
Áheyrnarfulltrúi: Jón Þór Þórðarson frá ÍA
Einnig sat Hörður Jóhannesson fundinn sem og Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri sem ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Reglugerð vegna úthlutunar æfingatíma í íþróttaaðstöðu.
Farið yfir reglurnar og nefndin samþykkir þær fyrir sitt leyti og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.
2. Önnur mál.
-
Bréf til tómstunda- og forvarnarnefndar frá Hrönn Ríkharðsdóttur, f.h. Grundaskóla, þar sem þakkað er fyrir verðlaun sem veitt voru við skólaslit í júní sl. Lagt fram.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:15.