Umhverfisnefnd (2000-2008)
4. fundur umhverfisnefndar Akraneskaupstaðar var haldinn í fundarherbergi bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18, miðvikudaginn 2. ágúst 2006 og hófst hann kl. 18:15.
Mættir: Rannveig Bjarnadóttir, formaður
Haraldur Helgason
Sigurður Mikael Jónsson
Varamenn: Hróðmar Halldórsson
Guðmundur Þór Valsson
Fundinn sat einnig Snjólfur Eiríksson, garðyrkjustjóri.
Fundargerð ritaði Rannveig Bjarnadóttir.
Fyrir tekið:
1. Magnús Freyr Ólafsson mætti á fundinn og kynnti verkefni sitt sem lýtur að endurbótum á sorphirðu, flokkun úrgangs og endurvinnslu.
Hann fór yfir helstu þætti sem hafa þarf í huga og viðraði nokkrar hugmyndir um hvað má betur fara í þessum málum. Hann sendir tillögur að byrjunarverkefnum fyrir næsta fund.
2. Erindisbréf umhverfisnefndar kynnt og rætt.
3. Umhverfisviðurkenningar.
Nokkrar ábendingar hafa borist frá bæjarbúum og verða þær lóðir skoðaðar á þriðjudag.
4. Farið yfir verkefnalistann og nokkur verkefni sett í forgang. Bréf frá eigendum húsnæðis við Ægisbraut kynnt og rætt um nauðsyn þess að taka strax á í hreinsunarmálum á þessu svæði. Rannveigu falið að ræða um þessi mál við bæjarstjóra.
Næsti fundur ákveðinn 16. ágúst n.k. kl. 18:15.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 21:15.
Rannveig Bjarnadóttir (sign)
Haraldur Helgason (sign)
Sigurður Mikael Jónsson (sign)
Hróðmar Halldórsson (sign)
Guðmundur Þór Valsson (sign)
Snjólfur Eiríksson (sign)