Upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi 2021
Skóla- og frístundasvið Akraneskaupstaðar bauð til glæsilegrar lokahátíðar þegar upplestrarkeppni grunnskólanna á Akranesi fór fram í Tónbergi miðvikudaginn 10. mars sl..Við athöfnina lásu 12 nemendur í 7. bekk Brekkubæjarskóla og Grundaskóla upp sögur og ljóð, sex þátttakendur úr hvorum skóla. Formlegur undirbúningur nemenda í 7. bekk fyrir keppnina hófst 16. nóvember á Degi íslenskrar tungu. Undankeppnir voru haldnar í hvorum skóla þar sem sex fulltrúar hvors skóla voru valdnir.
Heiðursgestur lokahátíðarinnar að þessu sinni var Hildur Karen Aðalsteinsdóttir og sagði hún keppendum frá sinni reynslu að takast á við nýjar áskoranir. Flutt voru tónlistaratriði frá nemendum við Tónlistarskóla Akraness sem einnig eru nemendur í 7. bekk.
Keppnin hefur sjaldan verið jafnari en í ár og áttu dómarar, þau Halldóra Jónsdóttir, sr. Þráinn Haraldsson og Jakob Þór Einarsson, erfitt val fyrir höndum.
Að lokum komst dómnefndin að niðurstöðu og Upplesari Grundaskóla 2021 var valinn Sigurður Brynjarsson og Upplesari Brekkubæjarskóla 2021 var valinn Nikola Jadwizyc. Sigurvegarar fengu í verðlaun peningagjöf og bók. Upplesarar kvöldsins fengu bókagjöf og einnig þeir aðilar sem komu að undirbúningi keppninnar. Allir nemendur í 7. bekk fengu viðurkenningaskjal fyrir sína þátttöku.
Við óskum öllum þátttakendum til hamingju með glæsilegan árangur.