Æskulýðs- og félagsmálaráð (2000-2002)
617. fundur æskulýðs- og félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 12 . febrúar 2002 og hófst hann kl. 8:00.
Mættir voru: Inga Sigurðardóttir,
Oddný Valgeirsdóttir,
Pétur Svanbergsson,
Tryggvi Bjarnason
Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir og Sveinborg Kristjánsdóttir félagasráðgjafi ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Oddný Valgeirsdóttir.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
Rætt um fjárhagsaðstoð síðasta árs og farið yfir listann yfir þá einstaklinga sem nutu fjárhagsaðstoðar á árinu 2001. Heildarfjárhagsaðstoð ársins 2001 var kr. 9.833.645,-.
2. Liðveisla
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Stefnumótun í málefnum fjölskyldunnar
Æskulýðs- og félagsmálaráð leggur til við bæjarráð að skipaður verði stýrirhópur til að vinna að fjölskyldustefnu sveitarfélagsins og að ráðinu verði falin ábyrgð og umsjón verkefnisins. Þar sem heildstæð fjölskyldustefna gengur þvert á alla þjónustu bæjarins er mikilvægt að aðrar nefndir á vegum bæjarins komi einnig að þeirri vinnu.
4. Atvinnumál ungs fólks
Æskulýðs- og félagsmálaráð leggur til að skipaður verður starfshópur til að leita leiða til bæta stöðu atvinnulausra ungmenna.
5. Tómstunda- og menningarhús
Málið kynnt.
6. Launakönnun Akraneskaupstaðar
Lagt fram, umræðu frestað til næsta fundar.
7. Breytingar á innra skipulagi félagmáladeildar
Málið kynnt.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 9:30