Atvinnumálanefnd (2000-2008)
92. fundur atvinnumálanefndar var haldinn í fundarsal bæjarskrifstofu að Stillholti 16-18, Akranesi, þriðjud. 23. okt. 2001 og hófst hann kl. 19:00.
Mættir voru: Guðni Tryggvason, formaður,
Þórður Þ. Þórðarson,
Elínbjörg Magnúsdóttir,
Ástríður Andrésdóttir,
Pétur Hansson.
Auk þeirra Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari sem einnig ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Málþing um atvinnumál á Akranesi.
Rætt um dagskrá málþingsins, framsöguefni ræðumanna og annað sem tengist málþinginu.
Atvinnumálanefnd hvetur til þátttöku bæjarbúa á málþinginu.
2. Kynningarblað fyrir Akranes, ?Skaginn skorar?.
Lagt fram kynningarblað fyrir Akranes sem dreift var með Morgunblaðinu í dag, kynningarblað sem nefndin hefur unnið að á undanförnum vikum ásamt Athygli ehf. Atvinnumálanefnd fagnar útgáfu blaðsins. Nefndin telur að hér hafi tekist vel til í kynningu á bænum og þakkar þeim sem að þessum málum hafa komið.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 19:30.