Atvinnumálanefnd (2000-2008)
137. fundur atvinnumálanefndar var haldinn miðvikudaginn 12. apríl 2006 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18, og hófst hann 12:00.
Mættir: Guðni Tryggvason formaður
Þórður Þórðarson
Hrönn Ríkharðsdóttir
Björn Guðmundsson
Auk þeirra Tómas Guðmundsson, markaðs- og atvinnufulltrúi og Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari, sem einnig ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Ökugerði.
Formaður og bæjarritari gerðu grein fyrir stöðu mála.
2. Frumkvöðull ársins á Vesturlandi.
Markaðs- og atvinnufulltrúa falið að koma tilnefningu á framfæri við SSV.
3. Önnur mál rædd.
Fundi slitið kl. 13:10.