Atvinnumálanefnd (2000-2008)
138. fundur atvinnumálanefndar var haldinn fimmtud. 7. september 2006 í fundarsal bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:00.
Mættir voru: Karen Jónsdóttir, formaður
Þórður Þ. Þórðarson
Haraldur Helgason
Björn Guðmundsson
Dagný Jónsdóttir
Fyrir tekið:
1. Erindisbréf atvinnumálanefndar.
Erindisbréfið rætt.
2. Erindisbréf markaðs- og atvinnufulltrúa.
Erindisbréfið rætt. Samþykkt að fela markaðs- og atvinnufulltrúum að undirbúa kynningu á verkefnum atvinnumálanefndar og þjónustu markaðs- og atvinnuskrifstofu sem nefndin vill kynna meðal bæjarbúa.
3. Samstarf atvinnumálanefndar og Orkuveitu Reykjavíkur,
Fyrirliggjandi samningur kynntur. Atvinnumálanefnd samþykkir að óska eftir fundi með forráðamönnum OR um framvindu samningsins.
4. Samkomulag Akraneskaupstaðar og SSV - þróun og ráðgjöf.
Fyrirliggjandi samningur kynntur.
5. Önnur mál.
Rætt um samskipti markaðs- og atvinnuskrifstofu og Markaðsráðs Akraness. Atvinnumálanefnd samþykkir að óska eftir fundi með stjórn MRA. Formanni falið að gera bæjarráði grein fyrir umræðum á fundinum varðandi samskipti við stóriðjufyrirtækin á Grundartanga.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 20:00.