Atvinnumálanefnd (2000-2008)
156. fundur atvinnumálanefndar var haldinn mánud. 31. mars 2008 á bæjarskrifstofunum, Stillholti 16-18 og hófst hann kl. 18:00.
Mættir voru: Ásgeir Hlinason formaður
Björn Guðmundsson
Haraldur Helgason
Þórður Þ. Þórðarson
Dagný Jónsdóttir
Auk þeirra sat fundinn Tómas Guðmundsson, markaðsfulltrúi, sem einnig ritaði fundargerð.
_____________________________________________________________
Fyrir tekið:
1. Bréf bæjarráðs, dags. 28.3.2008, þar sem óskað er umsagnar atvinnumálanefndar um tillögur starfshóps um endurskoðun á skipulagi menningar- og safnamála á Akranesi, dags. 26.3.2008.
Nefndin lýsir yfir ánægju með ýmsa hluta tillögunnar en óskar eftir nánari útlistun á því hvað felst í markaðs- og kynningarmálum m.t.t. markaðssetningar atvinnulífs. Nefndin óskar eftir að nýsköpunar- og þróunarstarf sé skilgreint nánar m.t.t. þess sviðs sem verkefnin falla undir. Einnig hefur nefndin áhyggjur af því að hafa ekki lengur aðgang að starfsmanni fyrir nefndina.
2. Námskeiðshald.
Markaðsfulltrúi kynnti stöðu mála. Umræddur viðburður verður haldinn innan tveggja vikna.
3. Önnur mál.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 20.10.