Bæjarstjórn
1.Bæjarstjórn - kosning forseta bæjarstjórnar til loka kjörtímabils skv. sveitarstjórnarlögum nr. 138/
1206053
Til máls tók Guðmundur Páll Jónsson og bar fram tillögu um Svein Kristinsson (S) sem forseta bæjarstjórnar til loka kjörtímabilsins.
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram.
Forseti þakkar það traust sem honum er sýnt með kjörinu.
2.Bæjarstjórn - kosning 1. varaforseta bæjarstjórnar til loka kjörtímabils skv. sveitarstjórnarlögum n
1206057
Til máls tók Guðmundur Páll Jónsson og bar fram tillögu um Guðmund Pál Jónsson (B) sem 1. varaforseta til eins árs.
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram.
3.Bæjarstjórn - kosning 2. varaforseta bæjarstjórnar til loka kjörtímabils skv. sveitarstjórnarlögum n
1206058
Til máls tók Guðmundur Páll Jónsson og bar fram tillögu um Einar Brandsson (D) sem 2. varaforseta bæjarstjórnar til eins árs.
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram.
4.Bæjarráð - kosning þriggja bæjarfulltrúa sem aðalmanna og þriggja til vara til eins árs skv. 13. gr.
1206054
Tilnefning kom fram um eftirtalda:
Aðalmenn:
Guðmundur Páll Jónsson (B), formaður
Hrönn Ríkharðsdóttir (S), varaformaður
Þröstur Þór Ólafsson (V)
Varamenn:
Dagný Jónsdóttir (B)
Guðmundur Þór Valsson (S)
Hjördís Garðarsdóttir (V)
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram. Eru því ofantalin réttkjörin í bæjarráð Akraneskaupstaðar til eins árs.
5.Bæjarráð - kosning eins áheyrnarfulltrúa og eins til vara til eins árs skv. 58. gr. samþykktar um st
1206059
Tilnefning kom fram um Einar Brandsson (D) sem áheyrnarfulltrúa í bæjarráði og Gunnar Sigurðsson (D) sem varaáheyrnarfulltrúa til eins árs.
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram.
6.Fjölskylduráð - kosning þriggja aðalmanna og þriggja til vara til eins árs samkvæmt ákvæðum 64. gr.
1206055
Tilnefning kom fram um eftirtalda aðila:
Aðalmenn:
Þröstur Þór Ólafsson (V), formaður
Dagný Jónsdóttir (B), varaformaður
Ingibjörg Valdimarsdóttir (S)
Varamenn:
Hjördís Garðarsdóttir (V)
Elsa Lára Arnardóttir (B)
Magnús Freyr Ólafsson (S)
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram. Eru því ofantalin réttkjörin í fjölskylduráð Akraneskaupstaðar til eins árs.
7.Fjölskylduráð - kosning eins áheyrnarfulltrúa og eins til vara til eins árs skv. samþykkt bæjarstjór
1206060
Tilnefning kom fram um Einar Brandsson (D)sem áheyrnarfulltrúa í fjölskylduráði og Önnu Maríu Þórðardóttur (D) sem varaáheyrnarfulltrúa til eins árs.
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram.
8.Framkvæmdaráð - kosning þriggja aðalmanna og þriggja til vara til eins árs skv. ákvæðum 70. gr. samþ
1206056
Tilnefning kom fram um eftirtalda aðila:
Aðalmenn:
Einar Benediktsson (S), formaður
Sveinn Kristinsson (S), varaformaður
Guðmundur Páll Jónsson (B)
Varamenn:
Magnús Freyr Ólafsson (S)
Gunnhildur Björnsdóttir (S)
Kjartan Kjartansson (B)
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram. Eru því ofantalin réttkjörin í framkvæmdaráð Akraneskaupstaðar til eins árs.
9.Framkvæmdaráð - kosning eins áheyrnarfulltrúa og eins til vara til eins árs skv. samþykkt bæjarstjór
1206061
Tilnefning kom fram um Gunnar Sigurðsson (D) sem áheyrnarfulltrúa og Karen Jónsdóttur (D) sem varaáheyrnarfulltrúa.
Samþykkt 9:0 þar sem fleiri tilnefningar komu ekki fram.
10.Forsetakosningar 30. júní 2012
1204036
Samþykkt 9:0.
11.Gjaldskrár íþróttamannvirkja 2012
1201089
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði samþykkt.
Samþykkt 9:0.
12.Deiliskipulag - Grófurðunarsvæði
1205064
Samþykkt 9:0.
13.Grenjar - hafnarsvæði, deiliskipulag
1202219
Samþykkt 9:0.
14.Bæjarstjórn - 1148
1205017
Fundargerðin staðfest 9:0.
15.Bæjarráð - 3154
1205018
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.1.Fulltrúar Akraneskaupstaðar í stjórnum.
1204124
15.2.Fulltrúar Akraneskaupstaðar í stjórnum.
1204124
15.3.Rekstrarstaða Akraneskaupstaðar 2012.
1205132
15.4.Innheimta fasteignagjalda - samningur
1204097
15.5.Þróunar- og nýsköpunarfélag Akraness, Hvalfjarðarsveitar og Faxaflóahafna.
1205062
15.6.Viðburðir á vegum Akraneskaupstaðar 2012
1204005
Til máls tók GS.
15.7.Tjaldsvæði- samningur um rekstur 2012
1203206
15.8.Garðakaffi - samningur um rekstur 2012
1203207
15.9.Saga Akraness - ritun.
906053
Til máls tóku EB, bæjarstjóri
15.10.Kalmansbraut - viðhald
1205133
15.11.Samkomulag um launakjör
1203122
Til máls tóku EB, GPJ, bæjarstjóri, EB, bæjarstjóri, SK.
EB lagði fram eftirfarandi bókun:
,,Bókun Einars Brandssonar, bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, vegna liðar nr. 11, málsnr. 1203122 - Samkomulag um launakjör úr fundargerð bæjarráðs 3154 frá 24. maí 2012.
Þrátt fyrir slæma fjárhagsstöðu bæjarsjóðs og þeirrar staðreyndar að nauðsynlegt er að ráðist sé í niðurskurð á útgjöldum bæjarins og þá ekki síst að ná niður launakostnaði þá ákveður meirihlutinn að sýna það fordæmi að hækka verulega laun bæjarritara, eins launahæsta starfsmanns bæjarins. Þetta fordæmi sem meirihlutinn sýnir með þessari ákvörðun verður ekki til að auðvelda nauðsynlegar aðgerðir á næstu misserum."
12.06.2012.
Einar Brandsson (sign)
15.12.Verklagsreglur um ráðningar hjá Akraneskaupstað
1112104
15.13.Leikskólar - fjárveiting v. vinnufatnaðar
1204060
15.14.Forsetakosningar 30. júní 2012
1204036
15.15.Langisandur - viðgerð á útisturtu
1205101
15.16.Gjaldskrár íþróttamannvirkja 2012
1201089
15.17.Sérdeild - umsókn um aukið fjármagn vegna ársins 2012.
1205114
15.18.Búseta fatlaðra framtíðarhugmyndir
1204075
15.19.Málefni aldraðra - skipan starfshóps
1203023
15.20.Starfsreglur um sérkennslu í leikskólum á Akranesi
1205051
15.21.Strætó bs. - niðurgreiðsla á fargjöldum
1205123
15.22.Stillholt 21 - framtíð lóðar.
1107105
15.23.Akraneshöfn 2012 - starfshópur v. uppbyggingar
1112153
15.24.Faxaflóahafnir sf. - fjárhagsáætlun 2012 endurskoðun
1205113
15.25.Höfðagrund - skemmdir á varnargarði
1205118
15.26.Lánasjóður sveitarfélaga - breytilegir útlánsvextir
1202069
15.27.Skógræktarfélag - samstarf um skógrækt og útivistarsvæði
1205112
15.28.Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2012
1205130
15.29.Kynnisferð til Brussel 18.-20. júní.
1104132
15.30.Heilbrigðiseftirlit - greiðsluframlag 2012
1201193
15.31.Menningarráð Vesturlands - fundargerðir 2012
1202065
15.32.SSV - stjórnarfundir 2012.
1203022
16.Skipulags- og umhverfisnefnd - 68
1205021
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
16.1.Breiðargata 8 umsókn um klæðningu
1205150
16.2.Deiliskipulag - Grófurðunarsvæði
1205064
16.3.Deiliskipulag - Jörundarholt
1206004
16.4.Upplýsinga- og fræðsluskilti á Akranesi
1012071
Til máls tóku MFÓ, GPJ
16.5.Vesturgata 113b - stækkun lóðar og deiliskipulagsbreyting
1010002
16.6.Tjaldsvæðið í Kalmansvík
810044
Til máls tók ÞÞÓ, MFÓ
16.7.Könnun á ferðatilhögun Akranes/Reykjavík
1203176
16.8.Grenjar - hafnarsvæði, deiliskipulag
1202219
16.9.Dagur íslenskrar náttúru 16. september 2012.
1206010
16.10.Kirkjubraut 50 fyrirspurn um breytingu í íbúðarhús
1206028
17.Fjölskylduráð - 90
1205016
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
17.1.Málefni aldraðra - skipan starfshóps
1203023
17.2.Starf félagsráðgjafa - 60% í barnavernd
1204080
17.3.Starf forstöðumanns 100% - búseta fatlaðra
1204076
17.4.Málefni fatlaðra - kostnaður sveitarfélaga
1201476
17.5.Fjárhagsáætlun 2013
1205099
17.6.Húsnæðismál apríl 2012
1204044
17.7.fjárhagsaðstoð-áfrýjun
1205152
17.8.fjárhagsaðstoð-áfrýjun
1205142
17.9.Aðstoð vegna húsnæðis
1107396
17.10.Fjölskylduráð - starfshættir 2010-2014
1006100
17.11.Fjölskyldustofa, fjárhagsyfirlit jan-mars 2012
1205131
18.Fjölskylduráð - 91
1205024
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
18.1.fjárhagsaðstoð-áfrýjun
1205142
18.2.Fjárhagsaðstoð - áfrýjun
1205196
18.3.Húsaleigubætur - áfrýjun
1206027
18.4.Fjárhagserindi - áfrýjun
1103062
18.5.Fjárhagsaðstoð - áfrýjun
1206017
18.6.Fjárhagsaðstoð - áfrýjun
1206016
18.7.Launalaust leyfi
1205136
18.8.Starfshópur um félagsþjónustu
1108132
18.9.Ferðaþjónusta fatlaðra, leiðbeinandi reglur
1202043
18.10.Umsókn um launað námsleyfi júní 2012
1205198
18.11.Fjöliðjan - skipurit og starfsmannahald
1205197
19.Framkvæmdaráð - 78
1206007
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
19.1.Vinnuskóli Akraness - laun 2012
1204116
19.2.Langisandur - viðgerð á útisturtu
1205101
19.3.Starf í þjónustumiðstöð/dýraeftirlit
1205139
19.4.Skógahverfi - leikvöllur
1206044
19.5.Framkvæmdastofa - rekstraryfirlit 2012
1203183
20.OR - fundargerðir 2012
1202192
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
21.Faxaflóahafnir sf. - aðalfundur 2012
1204083
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
22.Höfði - fundargerðir 2012
1201438
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
23.Umboð til handa bæjarráði í sumarleyfi bæjarstjórnar.
1206062
Forseti bæjarstjórnar lagði fram eftirfarandi tillögu:
,,Bæjarstjórn Akraness samþykkir að næsti reglulegi fundur bæjarstjórnar verði þriðjudaginn 28. ágúst nk. Bæjarráði verði falin fullnaðarafgreiðsla mála í samræmi við 62. gr. samþykktar um stjórn Akraneskaupstaðar og fundarsköp bæjarstjórnar."
Samþykkt 9:0.
24.Suðurgata 57 - Gamla Landsbankahúsið
1105130
Til máls tók forseti bæjarstjórnar og lagði hann fram eftirfarandi yfirlýsingu:
,,Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkir að ganga til samninga við Landsbankann hf. um kaup á húsi að Suðurgötu 57 á Akranesi, ásamt bílskúr og lóð að Suðurgötu 47. Landsbankinn hf. hefur boðið Akraneskaupstað húsið og lóðina til kaups fyrir kr. 35 milljónir.
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar vill taka tilboði bankans um kaup á húsinu og lóðinni því hún telur afar mikilvægt að ná yfirráðum yfir húsinu og meðfylgjandi lóð til að hefja megi markvissa uppbyggingu Akratorgs og endurreisn gamla miðbæjarins og auka um leið blómlegt mannlíf og viðeigandi umsvif þar. Bæjarstjórn telur að þetta sé mjög brýnt verkefni og mikið hagsmunamál fyrir Akraneskaupstað og Akurnesinga alla í bráð og lengd.
Samkvæmt áætlunum tæknimanna kaupstaðarins má lagfæra gamla Landsbankahúsið fyrir u.þ.b. 20 milljónir kr. þannig að á næstu vikum megi flytja þangað starfsemi sem tengist kaupstaðnum og á vel heima í húsinu og nú er greidd leiga fyrir í húsnæði annars staðar, s.s. upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn, endurhæfingarhúsið HVER og starfsstöð fyrir Símenntunarmiðstöð Vesturlands á Akranesi.
Gert er ráð fyrir að mat og ákvörðun varðandi nýtingu hússins til lengri tíma litið fari til gaumgæfilegrar skoðunar og umfjöllunar á viðeigandi vettvangi hjá kaupstaðnum og þar verði m. a. tekið til skoðunar hvort stefna beri að því að stjórnsýslu Akraneskaupstaðar verði komið fyrir í húsinu.
Það er mat bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar að m.t.t. þess mikla ávinnings sem Akurnesingar hafa af því að ná sameiginlega yfirráða- og ráðstöfunarrétti yfir gamla Landsbankahúsinu við Akratorg og meðfylgjandi lóð sé kaupverðið mjög hagstætt. Í því sambandi má einnig benda á að fasteignamat húss og lóðar er kr. 129.990.000 og brunabótamat kr. 374.630.000.
Eftir að gengið hefur verið frá samningi um kaup Akraneskaupstaðar á gamla Landsbankahúsinu og meðfylgjandi lóð er gert ráð fyrir að gerður verði samningur Akraneskaupstaðar og Landsbankans hf. um áframhaldandi viðskipti kaupstaðarins við bankann og að horfið verði frá fyrirætlunum um útboð á bankaviðskiptum kaupstaðarins.
Sameiginlega þræði í sögu bæjarins og bankans má rekja aftur um liðlega hálfa öld, allt til ársins 1964 þegar Sparisjóður Akraness sameinaðist Landsbanka Íslands. Landsbankinn hf og forveri hans hafa því lengi verið viðskiptabanki Akraneskaupstaðar.
Í ár á Akraneskaupstaður 70 ára afmæli er því við hæfi að hefja endurreisn gamla miðbæjarins og þá sérstaklega umhverfið við Akratorg."
Akranesi, 12. júní 2012.
Sveinn Kristinsson (sign)
Guðmundur Páll Jónsson (sign)
Hrönn Ríkharðsdóttir (sign)
Þröstur Þór Ólafsson (sign)
Ingibjörg Valdimarsdóttir (sign)
Einar Benediktsson (sign)
Dagný Jónsdóttir (sign)
Til máls tóku: EB, GPJ, GS, EBen., bæjarstjóri, EB, GPJ, SK.
EB lagði til að yfirlýsingunni verði vísað til umfjöllunar í bæjarráði.
Tillagan EB felld 2:7.
Með voru GS, EB.
Á móti: SK, GPJ, DJ, MFÓ, ÞÞÓ, IV, EBen.
Forseti bar yfirlýsinguna upp til samþykktar.
Yfirlýsingin samþykkt 7:0.
Með voru: SK, GPJ, DJ, MFÓ, ÞÞÓ, IV, EBen.
Á móti GS, EB.
25.Breyting á stjórnskipulagi Akraneskaupstaðar.
1206088
Til máls tók forseti bæjarstjórnar og lagði hann fram eftirfarandi tillögu að ályktun:
,,Bæjarstjórn Akraness samþykkir að setja á stofn starfshóp til að fara yfir bæjarmálasamþykkt og skipurit bæjarins og gera tillögur til bæjarstjórnar um breytingar. Starfshópurinn skal skipaður einum fulltrúa frá hverju þeirra framboða er sæti á í bæjarstjórninni. Starfshópurinn skal stefna að því að skila tillögum sínum fyrir fyrsta fund bæjarstjórnar í ágúst. Starfshópurinn kýs sér formann.
Helstu álitaefni sem starfshópurinn skal skoða eru eftirfarandi:
- Skipulag stofa með tilliti til nýrra og breyttra verkefna bæjarskrifstofunnar
- Fjölda fulltrúa í ráðum og atkvæðisrétt og hverjir geti setið þar
- Hlutverk Akranesstofu og verkefni sem falla undir hana
- Önnur atriði sem varða tillögur starfshópsins, s.s. laun bæjarfulltrúa og þeirra er sitja í ráðum og nefndum.
Greinargerð
Nú er allnokkuð síðan að gerðar voru veigamiklar breytingar á skipuriti og bæjarmálasamþykktum kaupstaðarins. Reynsla er því komin á hvernig til hefur tekist og þó að almennt sé ekki heppilegt að gera ört viðamiklar skipulagsbreytingar er ávallt nauðsynlegt að laga skipulag að nýjum aðstæðum, verkefnum og viðhorfum.
Stórum verkefnaflokki, málefnum fatlaðs fólks, er nú sinnt af bænum og málefni aldraðra kunna að flytjast til kaupstaðarins innan tíðar. Vegna þessa kann að vera skynsamlegt að breyta skipuriti og innra starfi bæjarskrifstofunnar.
Ljóst er að núverandi skipulag fellur ekki vel að pólitískri samsetningu í bæjarstjórninni, gefur litlum minnihluta takmörkuð völd og veldur því að aðalfulltrúar í bæjarstjórn þurfa að sitja í fleiri en einu ráði. Við þessu þarf að bregðast, t.d. með því að gera varafulltrúum kleift að sitja í ráðum til að dreifa álagi á kjörna fulltrúa."
Til máls tóku: SK, GS, bæjarstjóri, EB, ÞÞÓ, bæjarstjóri, SK, GPJ, SK.
Forseti bar tillöguna upp til atkvæðagreiðslu.
Tillagan samþykkt 9:0.
Fundi slitið.
Forseti leitaði afbrigða við að taka á dagskrá yfirlýsingu bæjarstjórnar við Landsbankann hf. um húsnæðiskaup svo og tillögu um breytingu á stjórnskipulagi Akraneskaupstaðar.
Samþykkt 7:0 - SK, GPJ, DJ, MFÓ, ÞÞÓ, IV, EBen
Hjá sátu GS og EB.