Bæjarstjórn
1.
1.1.Garðakaffi - samningur um rekstur 2012
1203207
Til máls tóku: HR, ÞÞÓ, GS
2.Fjölskylduráð - 89
1203024
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
2.1.Fjárhagsáætlun 2013
1205099
2.2.Langisandur - viðgerð á útisturtu
1205101
2.3.Verktakar - aðkeypt þjónusta
1203071
2.4.Gjaldskrár íþróttamannvirkja 2012
1201089
2.5.Vinnuskóli Akraness - laun 2012
1204116
3.Framkvæmdaráð - 77
1205015
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
3.1.Tjaldsvæði- samningur um rekstur 2012
1203206
3.2.IPA - umsókn um fjármagn
1205072
3.3.Akranesstofa - ferðamál
1203043
3.4.Erlendir listamenn - heimsókn á Akranes
1205098
3.5.Bæjarlistamaður Akraness 2012
1204004
4.Stjórn Akranesstofu - 54
1205013
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
4.1.Viðburðir á vegum Akraneskaupstaðar 2012
1204005
4.2.Garðalundur/Langisandur - uppbygging þjónustu og afþreyingar
1205010
4.3.Sólmundarhöfði - gömlu húsin
1205011
4.4.Bókasafn - erindi bæjarbókavarðar varðandi héraðsskjalasafn
1203204
4.5.Verklagsreglur leikskóla
902012
5.Faxaflóahafnir sf. - fundargerðir 2012
1201149
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
5.1.Tillaga til þingsályktunar mál 220 - tímasett áætl. um flutning heilsug. frá ríki til sveitarfél.
1203208
5.2.Búseta fatlaðra framtíðarhugmyndir
1204075
5.3.Skagastaðir - starfsemi á árinu 2012
1110305
5.4.Herdísarholt
1205050
5.5.Tillaga til umsagnar mál 120 - heilbrigðisþjónusta í heimabyggð
1203198
5.6.Málefni aldraðra - skipan starfshóps
1203023
5.7.Vinnustaðagreining - starfsmenn Akraneskaupstaðar nóv - des 2011
1104089
5.8.Byggðasafnið - starfsmannamál
1112097
5.9.Starfsreglur um sérkennslu í leikskólum á Akranesi
1205051
5.10.Stóri leikskóladagurinn
1205063
5.11.Fyrirmyndarstofnun 2012 STRV
1205093
5.12.fjárhagsaðstoð-áfrýjun
1205097
5.13.fjárhagsaðstoð-áfrýjun
1205078
5.14.Félagsþjónustan - verkferlar og vinnulag mars 2012
1203127
5.15.Mæðrastyrksnefnd - styrkbeiðni
1205073
5.16.Ársreikningar Akraneskaupstaðar 2011 - samstæða
1205025
5.17.Reglur um sölu eigna í eigu Akraneskaupstaðar og stofnana - breyting 2012
1204100
5.18.Styrkir 2012 - v/menningar, íþróttamála, atvinnumála og annara mála.
1202070
5.19.Fasteignaskattur 2012 - umsóknir um styrki til greiðslu fasteignaskatts.
1203047
5.20.Tölvukaup skv. tilboði
1202226
5.21.Bifreiðakaup v/ þjónustumiðstöð - ZZ-F23
1203099
5.22.Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar - kostnaðarskipting.
1205039
5.23.Samkomulag um launakjör
1203122
6.Bæjarráð - 3153
1205006
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
6.1.Suðurgata 57 (Landsbankahús) - hugsanleg nýting
1201238
6.2.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2011 - B hluti
1205024
6.3.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2011 - A hluti
1205023
7.Bæjarráð - 3152
1205005
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
8.Bæjarstjórn - 1147
1205003
Fundargerðin staðfest 9:0.
9.Reglur um sölu eigna í eigu Akraneskaupstaðar og stofnana - breyting 2012
1204100
Til máls tóku: HR, GPJ, ÞÞÓ
Reglurnar samþykktar 9:0 með áorðnum breytingum.
10.Bifreiðakaup v/ þjónustumiðstöð - ZZ-F23
1203099
Samþykkt 9:0.
11.Ársreikningar Akraneskaupstaðar 2011 - samstæða
1205025
Ársreikningurinn samþykktur 9:0 og staðfestu bæjarfulltrúar hann með undirritun sinni.
12.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2011 - B hluti
1205024
2.1. Höfði, hjúkrunar- og dvalarheimili
2.2. Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf.
2.3. Háhiti ehf.
12.1.Hagaflöt 10, innbyrðis breytingar og breyttur eigandi
1205044
13.Stjórn Akranesstofu - 53
1205002
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
13.1.Efnistaka á Langasandi 2012
1205088
13.2.Umhverfisverðlaun Akraneskaupstaðar 2012
1205089
13.3.Jörundarholt - stórbílastæði
1204038
Til máls tóku: GS, HR
Hrönn óskaði upplýsinga um skipulag Jörundarholts.
13.4.Deiliskipulag - Grófurðunar- og vélhjólasvæði
1205064
13.5.Grenjar - hafnarsvæði, deiliskipulag
1202219
13.6.Kalmansvellir 6 umsókn um viðbyggingu
1205074
13.7.Vogabraut 4 umsókn um merkingar á sumarhóteli
1205070
14.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2011 - A hluti
1205023
1.1. Aðalsjóður
1.2. Eignasjóður
1.3. Gáma
1.4. Byggðasafn
1.5. Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf.
Til máls tóku: EB, HR, bæjarstjóri, EB, HR, GS, bæjarstjóri, GPJ, GS
Einar Brandsson lagði fram eftirfarandi bókun Sjálfstæðisflokksins:
Bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins vegna ársreiknings Akraneskaupstaðar 2011 á bæjarstjórnarfundi nr.1148, 22 maí 2012.
Í kjölfar efnahagshrunsins á sínum tíma greip þáverandi meirihluti Sjálfstæðisflokksins, í góðu samstarfi við hluta þáverandi minnihluta, til sársaukafullra en nauðsynlegra sparnaðaraðgerða á árunum 2009 og 2010 sem lækkuðu útgjöld bæjarins um 260 milljónir króna. Þær aðgerðir skiluðu tilætluðum árangri en því miður tók núverandi meirihluti þá ákvörðun að afturkalla þær flestar. Afleiðingar þeirrar ákvörðunar liggja nú fyrir í vaxandi taprekstri.
Þó fjárhagsstaða Akraneskaupstaðar sé að mörgu leyti sterk leggja ný sveitarstjórnarlög þær skyldur á herðar kjörinna fulltrúa að rekstur sveitarfélaga sé í jafnvægi á hverju þriggja ára tímabili. Nú er fyrsta slíka tímabilið að verða hálfnað og því þarf rekstur Akraneskaupstaðar að skila talsverðum hagnaði á næsta eina og hálfa ári. Það mun ekki nást nema með gjörbreyttum vinnubrögðum meirihluta bæjarstjórnar eins og við höfum ítrekað bent á í umræðum og bókunum í bæjarstjórn.
Sparnaðaraðgerðir eru ávallt umdeilanlegar og sársaukafullar, sérstaklega þegar horft er til þess að 60% af rekstrarútgjöldum sveitarfélaga er launakostnaður. Bæjarfulltrúar meirihlutans verða að bregðast nú þegar við í rekstri sveitarfélagsins og horfast í augu við þær staðreyndir sem ársreikningurinn leiðir í ljós. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu hér eftir sem hingað til ekki víkjast undan erfiðum ákvörðunum og hvetja aðra bæjarfulltrúa til hins sama."
22.05.2012
Gunnar Sigurðsson (sign)
Einar Brandsson (sign)
Ársreikningur Akraneskaupstaðar fyrir árið liggur nú fyrir.
Afkoma ársins er ekki í samræmi við væntingar bæjaryfirvalda og hefur versnað frá árinu 2010, nokkuð umfram fjárhagsáætlun, en þær skýringar helstar eru utanaðkomandi áhrif sem Akraneskaupstaður hefur að mestu leyti engin áhrif á, svo sem verðbólga, óhagstæð gengisþróun og hækkun lífeyrisskuldbindinga. Í þessu samhengi verður að líta til þess að á síðasta kjörtímabili jók þáverandi meirihluti langtímaskuldir kaupstaðarins nánast fjórfalt og hefur sú aukna skuldsetning töluverð áhrif.
Ef skoðuð er rekstrarafkoma kaupstaðarins í heild sinni til að átta sig á breytingum frá fyrra ári, má sjá eftirfarandi:
Rekstrarafkoma sem er neikvæð um 194,6 m.kr. versnar frá fyrra ári, en þá var afkoman jákvæð um 383,2 m.kr. Breyting milli ára er því samtals 577 m.kr.
Helstu stærðir sem hafa áhrif á þessa niðurstöðu frá fyrra ári eru:
· Fjármagnsliðir fara úr jákvæðri niðurstöðu í neikvæða, frávik 303 m.kr.
· Lífeyrisskuldbindingar aukast (án Höfða) um 37 m.kr.
· Halli á málefnum fatlaðra, en rekstur þess málaflokks var tekinn yfir á árinu var 15,3 m.kr.
· Rekstur Höfða fer úr jákvæðri niðurstöðu í neikvæða; frávik 102,8 m.kr., þar af hækkuðu lífeyrisskuldbindingar um 59 m.kr. og tekjur lækkuðu vegna fækkunar hjúkrunarrýma um 26 m.kr.
Í ljósi niðurstöðu ársreikningsins er ljóst að bæjarstjórn mun skoða til hvaða aðgerða mögulegt og raunhæft er að grípa, þannig að rekstrarstaða kaupstaðarins komist í betra horf. Markmiðið er að spara án þess þó að skerða grundvallarþjónustu. Að þeim málum er nú þegar unnið undir stjórn bæjarráðs.
Fjárhagslegur og félagslegur grundvöllur Akraneskaupstaðar stendur traustum fótum, og mun bæjarstjórn Akraness gera sitt til, þannig að kaupstaðurinn geti áfram veitt íbúum sínum afbragðsþjónustu með sambærilegum hætti og verið hefur undanfarin misseri, eins og fjölmargar viðurkenningar til stofnana kaupstaðarins bera vitni um."
Akranesi, 22. maí 2012.
Guðmundur Páll Jónsson (sign)
Hrönn Ríkharðsdóttir (sign)
Ingibjörg Valdimarsdóttir (sign)
Einar Benediktsson (sign)
Gunnhildur Björnsdóttir (sign)
Dagný Jónsdóttir (sign)
Þröstur Þór Ólafsson (sign)
Ársreikningurinn samþykktur 9:0 og staðfestu bæjarfulltrúar hann með undirritun sinni.
15.Skipulags- og umhverfisnefnd - 67
1205012
Fundargerðin lögð fram til kynningar.
15.1.Samband íslenskra sveitarfélaga - fundargerðir 2012
1202024
15.2.Menningarráð Vesturlands - fundargerðir 2012
1202065
15.3.K.F.U.M. og K. 50 ára - styrkbeiðni
1204143
15.4.Fjallskilasamþykkt - nefnd um sameiningu samþykkta
1202233
15.5.Minka- og refaveiðar - framlög
1205028
15.6.Rannsóknir á hrossum á Kúludalsá
1205059
Fundi slitið - kl. 18:20.