Bæjarstjórn
1.Fundargerðir 2014 - bæjarstjórn.
1401184
Fundargerðin staðfest 9:0.
2.Fundargerðir 2014 - Faxaflóahafnir sf.
1401090
Samþykkt 9:0 að taka fundargerðina með afbrigðum til kynningar á fundinum.
Lögð fram.
Til máls tók: GS og GPJ.
3.Fundargerðir 2014 - Yfirkjörstjórn
1404033
Lagðar fram.
4.Fundargerðir 2014 - Höfði
1401149
Lögð fram.
5.Fundargerðir 2014 - stjórn OR
1403061
Lagðar fram.
6.Fundargerðir 2014 - Fasteignafélag Akraness ehf
1404113
Lagðar fram.
7.Fundargerðir 2014 - Fasteignafélag Akaness slf
1404114
Lögð fram.
8.Fundargerðir 2014 - skipulags- og umhverfisnefnd.
1401161
Lagðar fram.
9.Fundargerðir 2014 - framkvæmdaráð.
1401160
Lögð fram.
10.Fundargerðir 2014 - fjölskylduráðs.
1401159
Lagðar fram.
11.Fundargerðir 2014 - bæjarráð.
1401158
Lagðar fram.
12.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2013 - A hluti
1401032
1.1 Aðalsjóður
1.2 Eignasjóður
1.3 Gáma
1.4 Byggðasafn
1.5 Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf.
Til máls tóku: ÞÞÓ, EBr, RÁ, IV, GPJ, EBr og IV.
Samþykkt 9:0 að vísa reikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
13.Kjarasamningsumboð 2014 - Samband ísl. sveitarf.
1404084
Bæjarstjórn Akraness felur hér með Sambandi íslenskra sveitarfélaga fullnaðarumboð til kjarasamningsgerðar fyrir sína hönd við eftirtalin stéttarfélög: Félag bókasafns- og upplýsingafræðinga, Félag stjórnenda í leikskóla, Félag íslenskra félagsvísindamanna, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Fræðagarður, Iðjuþjálfafélag Íslands og Stéttarfélag lögfræðinga.
14.Grenigrund 7, umsókn um stækkun bílgeymslu og breytingar innbyrðis.
1403115
Samþykkt 9:0.
15.Deiliskipulagsbreyting - Þjóðbraut 1
1403195
Til máls tók: GS og GPJ.
Samþykkt 9:0.
16.Deiliskipulagsbreyting, Kalmansvellir 4A.
1403134
Til máls tók: EBr og GPJ.
Samþykkt 9:0.
17.Deiliskipulagsbreyting - Stofnanareitur - Heiðarbraut 40
1401127
Nefndin mælir jafnframt með að nágrönnum verði sent kynningarbréf vegna málsins.
Til máls tóku: EBr og GPJ.
Bæjarstjórn samþykkir 9:0 að deiliskipulagstillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og að nágrönnum verði sent kynningarbréf.
18.Samkomulag v/ Heiðarbraut 40
1401127
Til máls tóku: EBr, IV, RÁ og GS.
Samþykkt 8:1.
19.Sveitarstjórnarkosningar 2014 - 31. maí 2013.
1401042
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að semja kjörskrá. Jafnframt er bæjarráði veitt fullnaðarheimild til að fjalla um athugasemdir, gera nauðsynlegar leiðréttingar og úrskurða um ágreiningsmál sem kunna að koma fram að kjördegi vegna kosninga til sveitarstjórna þann 31. maí nk. í samræmi við 10. gr. laga númer 5/1998 um kosningar til sveitarstjórna.
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði ákvörðun um greiðslur til yfirkjörstjórnar, undirkjörstjórna og annarra starfsmanna.
Samþykkt 9:0.
20.Höfði - endurfjármögnun lána
1403113
Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkir hér með að veita einfalda ábyrgð vegna lántöku HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimilis hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 159.000.000 kr. í samræmi við samþykkta skilmála lánveitingarinnar sem liggja fyrir fundinum. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og er hún óskipt (in solidum) gagnvart kröfuhafa, en innbyrðis skiptist hún í hlutfalli við eignarhluti í HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimili. Til tryggingar ábyrgðinni standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Er lánið tekið til að endurfjármagna eldra óhagstæðara lán sem tekið var árið 2011 til að fjármagna stækkun þjónusturýmis hjúkrunarheimilisins, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórnin skuldbindur hér með sveitarfélagið sem eiganda félagsins að eignarhald að félaginu megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Akraneskaupstaður selji eignarhlut í HÖFÐA hjúkrunar- og dvalarheimilis til annarra opinberra aðila, skuldbindur Akraneskaupstaður sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.
Jafnframt er Regínu Ásvaldsdóttur bæjarstjóra kt. 300660-3989 veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta f.h. Akraneskaupstaðar veitingu ofangreindrar ábyrgðar með áritun á lánssamninginn.
Samþykkt 9:0
21.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2013 - samstæða
1401034
Samþykkt 9:0 að vísa reikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
22.Ársreikningur Akraneskaupstaðar 2013 - B - hluti
1401033
2.1 Höfði hjúkrunar og dvalarheimili
2.2 Fasteignafélag Akraneskaupstaðar ehf.
2.3 Háhiti ehf.
Samþykkt 9:0 að vísa reikningnum til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Fundi slitið - kl. 19:15.
Forseti minntist látins bæjarfulltrúa, Gísla Sigurjóns Sigurðssonar:
Minningarorð um Gísla Sigurjón Sigurðsson
f. 4. nóvember 1934 - d. 23. apríl 2014.
Látinn er Gísli Sigurjón Sigurðsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi á Akranesi.
Gísli sat í bæjarstjórn Akraness 1970-1974 fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Gísli var fæddur 4. nóvember 1934 á Akranesi. Hann var kjörinn bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akranesi frá 1970 - 1974. Auk bæjarfulltrúastarfsins gegndi Gísli ýmsum opinberum trúnaðarstörfum um ævina, var lengi í byggingarnefnd bæjarins og stjórnarmaður í stjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita. Hann var félagslyndur maður og vinamargur, var í Skátafélagi Akraness frá barnsaldri, söng með karlakórnum Svönum á sínum yngri árum og félagi í Oddfellowstúkunni Agli á Akranesi og gegndi þar ýmsum trúnaðarstörfum.
Bæjarstjórn Akraness sendir fjölskyldu Gísla Sigurjóns Sigurðssonar samúðarkveðjur um leið og framlag hans til bæjarmála á Akranesi er þakkað.
Bæjarfulltrúar og embættismenn risu úr sætum og vottuðu hinum látna virðingu sína.