Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. og ehf.
4. fundur. Fimmtudaginn 25. ágúst 2007, kom stjórn Fasteignafélags Akraneskaupstaðar slf. saman til fundar í fundarsal bæjarskrifstofu að Stillholti 16-18 og hófst hann kl: 17:40.
______________________________________________________
Mættir voru: Karen Jónsdóttir
Gunnar Sigurðsson
Guðmundur Páll Jónsson
_____________________________________________________________
Fyrir tekið:
1. Tilkynning um nýja stjórn.
Stjórn skipa nú, Karen Jónsdóttir, Gunnar Sigurðsson og Guðmundur Páll Jónsson.
2. Bygging nýs leikskóla.
Samþykkt að félagið standi fyrir og fjármagni byggingu nýs leikskóla í samræmi við þær hugmyndir sem kynntar hafa verið. Lægstbjóðandi í verkáfanga I er Betri bær hf. Bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviði falið að ganga frá nauðsynlegum samningum við fyrirtækið.
Bæjarritara og fjármálastjóra falið að undirbúa nauðsynlegar skráningar gagnvart skattyfirvöldum þannig að hægt sé að nýta vsk hagræði af framkvæmdinni.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:50