Fasteignafélag Akraneskaupstaðar slf. og ehf.
20. fundur Fasteignafélags Akraneskaupstaðar, haldinn í fundarherbergi 1, Stillholti 16-18,
þriðjudaginn 15. september 2009 og hófst hann kl. 17:50
Fundinn sátu:
Sæmundur Víglundsson, formaður
Þórður Þ. Þórðarson, varaformaður
Sveinn Kristinsson, aðalmaður
Jón Pálmi Pálsson, framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu
Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Ragnar Már Ragnarsson, verkefnastjóri
Fyrir tekið:
0909037 - Fasteignafélag Akraneskaupstaðar - prókúra | ||
Lagt er til að framkvæmdastjóri Framkvæmdastofu, Jón Pálmi Pálsson, fari með prókúru fyrir Fasteignafélagið. | ||
Stjórn Fasteignafélagsins samþykkir tillöguna. | ||
|
||
2. |
0908019 - Íþróttahúsið við Vesturgötu og Íþróttamiðstöðin Jaðarsbökkum - búnaður. | |
Stjórnin samþykkir að heimila framkvæmdastjóra að kaupa búnað fyrir íþróttamannvirki kaupstaðarins fyrir allt að kr. 2. milljónir. | ||
|
||
3. |
0909034 - Dalbraut 1, bókasafn - afsal | |
Fyrir liggur afsal Virkjunar ehf vegna eignarhluta í Dalbraut 1, fastanúmer eignarinnar 229-0055 ásamt hlutdeild í sameign og lóðarréttindum. | ||
Stjórn Fasteignafélagsins samþykkir afsalið fyrir sitt leyti með undirritun afsalsins. | ||
|
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:10