Félagsmálaráð (2002-2008)
631. fundur félagsmálaráðs haldinn á félagsmáladeild
Stillholti 16-18, þriðjud. 5. nóv. 2002 og hófst hann kl.18:00.
______________________________________________________
Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
Margrét Þóra Jónsdóttir
Tryggvi Bjarnason,
Sæmundur Víglundsson
Oddný Valgeirsdóttir.
Auk þeirra félagsmálastjóri, Sólveig Reynisdóttir sem ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Oddný Valgeirsdóttir.
______________________________________________________________
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
Staðan á fjárhagsaðstoð kynnt. Lagður fram listi yfir þá sem fengið hafa fjárhagsaðstoð það sem af er árinu.
2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Liðveisla
Lögð fram kostnaðaráætlun vegna liðveislu árið 2003, alls krónur 3.500.000.-
4. Landsfundur jafnréttisnefnda
Lögð fram dagskrá landsfundar jafnréttisnefnda sem haldinn verður í Hafnafirði 8.-9. nóvember 2003. Félagsmálaráð óskar eftir heimild til að senda einn fulltrúa á landsfundinn.
5. Fjárhagsáætlun ársins 2003.
Farið yfir drög að fjárhagsáætlun ársins 2003.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 20:00