Félagsmálaráð (2002-2008)
641. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 1. apríl 2003 og hófst hann kl.16:00.
Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
Margrét Þóra Jónsdóttir
Tryggvi Bjarnason
Sigurður Arnar Sigurðsson
Sæmundur Víglundsson
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs og Sveinborg Kristjánsdóttir yfirfélagsráðgjafi sem ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Sigurður Arnar Sigurðsson.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Staða fjárhagsaðstoðar 2002.
Niðurstöðutala fjárhagsaðstoðar fyrir árið 2002 er kr. 14.622.402,-.
3. Barnavernd.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
4. Viðbótarlán.
Úthlutað var tveimur viðbótarlánum samtals að upphæð kr. 5.320.556,-.
5. Húsaleigubætur.
Bréf félagsmálaráðuneytisins, dags. 24. mars 2003, vegna greiðslna sveitarfélaga á húsaleigubótum og kröfu um skil á ítarlegri skilagreinum varðandi þróun á greiðslu húsaleigubóta.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:50