Félagsmálaráð (2002-2008)
646. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 18. júní 2003 og hófst hann kl.16:00.
Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
Margrét Þóra Jónsdóttir
Sigurður Arnar Sigurðsson
Sigurveig Stefánsdóttir
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs sem ritaði fundargerð. Trúnaðarbók ritaði Sigurður Arnar Sigurðsson.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók
2. Barnavernd
3. Viðbótarlán
Endurskoðun á hámarksverði íbúða við veitingu viðbótarlána.
Stærð fjölskyldu: | Hámarksverð var: |
Hámarksverð verður: |
Einstaklingur | 7.350.000- | 8.000.000- |
Tveir | 8.350.000- | 9.000.000- |
Þrír | 9.450.000- | 10.300.000- |
Fjórir | 10.450.000- | 11.300.000- |
Fimm eða fleiri | 11.650.000- | 12.700.000- |
Úthlutað var sex viðbótarlánum samtals að upphæð kr. 11.320.000.-
Félagsmálaráð óskar eftir því við bæjarráð að sótt verði um viðbótarlán að upphæð kr.50.000.000.- til Íbúðalánasjóðs í ljósi þess að ca. 70% af viðbótarlánum ársins 2003 er þegar úthlutað.
4. Leiguíbúðir
Samþykkt að úthluta Þóru Gunnarsdóttur leiguíbúð að Skarðsbraut 9
5. Bréf Tryggingarstofnunar ríkisins dags. 3. júní 2003 varðandi greiðslur á lífeyri vegna fósturbarna.
Erindið kynnt.
6. Bréf Barnaverndarstofu dags. 2. júní 2003 varðandi sumardvalir á vegum barnaverndarnefnda.
Erindið kynnt.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:15