Félagsmálaráð (2002-2008)
682. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 4. janúar 2005 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Ágústa Friðriksdóttir
Sæmundur Víglundsson
Tryggvi Bjarnason
Sigurður Arnar Sigurðsson
Auk þeirra Sólveig Reynisdóttir sviðstjóri fjölskyldusviðs og Sveinborg Kristjánsdóttir yfirfélagsráðgjafi sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Bréf félagsmálaráðuneytisins, dags. 16.12.2004, þar sem óskað er eftir umsögn um drög að reglugerð um daggæslu barna í heimahúsum.
Sigrúnu Gísladóttur og Sólveigu Reynisdóttur falið að vinna umsögnina.
4. Bréf bæjarstjórnar, dags. 15.12.2004, varðandi íþróttamál og félagsstarf aldraðra.
Lagt fram.
5. Bréf Barnaverndarstofu dags. 14.12.2004 varðandi sískráningu tilkynninga í barnaverndarmálum.
Lagt fram.
6. Fjárhagsaðstoð.
Staða fjárhagsaðstoðar ársins 2004 kynnt.
Fundi slitið kl. 17:30