Félagsmálaráð (2002-2008)
722. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 5. desember 2006 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Tryggvi Bjarnason
Anna Lára Steindal
Vilhjálmur Andrésson
Varamaður: Karen Jónsdóttir
Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir
Auk þeirra Sveinborg Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók
2. Barnavernd.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Málefni innflytjenda
Bréf bæjarráðs, dags. 15.11. 2006, varðandi þjónustu útlendinga á Akranesi ásamt bréfi RKÍ. Félagsmálaráð mælir með því við bæjarráð að Akraneskaupstaður og Rauði kross Íslands - Akranesdeild geri með sér þjónustusamning til tveggja ára í tilraunaskyni sem kveði á um að Akranesdeildin taki að sér að sinna þjónustu við útlendinga í bæjarfélaginu.
Fundi slitið kl. 17:30