Félagsmálaráð (2002-2008)
737. fundur félagsmálaráðs haldinn á skrifstofu ráðgjafadeildar,
Stillholti 16-18, þriðjud. 26. júní 2007 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Magnús Þór Hafsteinsson, formaður
Margrét Þóra Jónsdóttir
Anna Lára Steindal
Tryggvi Bjarnason
Auk þeirra Ingibjörg Gunnarsdóttir, yfirfélagsráðgjafi og Sveinborg Kristjánsdóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, sem ritaði fundargerð. Fundargerð síðasta fundar lesin og samþykkt.
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Fjárhagsaðstoð.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd.
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
3. Ósk um ferðastyrk v/frístundaaksturs.
Félagsmálaráð samþykkti erindi Jórunnar Petru Guðmundsdóttur, forstöðuþroskaþjálfa á sambýlinu að Laugarbraut um ferðastyrk vegna frístundaaksturs fyrir árið 2007. Samþykktur var styrkur að upphæð kr. 60.000 fyrir hvern íbúa á sambýlinu, samtals kr. 360.000.
Fundi slitið kl. 17:00