Félagsmálaráð (2002-2008)
Stillholti 16-18, mánud. 21. jan. 2008 og hófst hann kl. 16:00.
Mættir voru: Magnús Þór Hafsteinsson, formaður
Hallveig Skúladóttir
Anna Lára Steinda
Margrét Þóra Jónsdóttir
Auk þeirra Hrefna Rún Ákadóttir, nemi í félagsráðgjöf,
Fundur settur af formanni.
Fyrir tekið:
1. Framfærsla
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók.
2. Barnavernd
Einstaklingsmál skráð í trúnaðarbók
3. Félagslegar leiguíbúðir
Fjöldi fjölskyldna á biðlista eftir félagslegu húsnæði hjá Akraneskaupstað eru 35 nú í janúar 2008 og hafa aldrei verið fleiri. Félagsmálaráð óskar eftir því við bæjarráð að fá leyfi til að leigja fimm nýjar íbúðir til að sinna þeim fjölskyldum sem eru í brýnustu þörfinni
4. Reglur um veitingu fjárstyrks til að greiða fyrir lögmannsastoð barnaverndarmálum
Félagsmálaráð samþykkti að farið verði í endurskoðun á reglunum
5. Fjárhagsaðstoðarkvarðinn
Félagsmálaráð leggur til við bæjarráð að fjárhagsaðstoðarkvarðinn verði hækkaður í samræmi við hækkun Reykjavíkurborgar eða um 4,2% frá 1. febrúar 2008
6. Vistunarmatsnefnd Vesturlands
Sviðsstjóri fjölskyldusviðs hefur verið skipuð af Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra sem varamaður í Vistunarmatsnefnd Vesturlands til fimm ára
Fundi slitið kl. 17:45