Fjölskylduráð (2009-2014)
1.Skólastarf - hagnýting nýlegra rannsóknaniðurstaðna.
910107
2.Málþing SSV 9. nóv. 2009
910114
Lögð fram dagskrá málþings SSV þar sem fjallað er um yfirfærslu málefni fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga sem haldið verður á Hótel Hamri 9. nóvember 2009 kl. 17:00.
3.Húsaleigubætur - minnisblað okt. 2009
910064
Málinu frestað.
4.Brekkubæjarskóli - forfallakennsla
910115
Bókun skólaráðs lögð fram. Fjölskylduráð fjallað um málið á fundi sínum 16. september sl. og bókaði m.a. að framkvæmdastjóra Fjölskyldustofu væri falið að vinna að málinu og finna lausn hið fyrsta.
5.Sumarlokun leikskóla sumarið 2010
911006
Fjölskylduráð leggur til við bæjarráð að leikskólarnir loki í 4 vikur á komandi sumri. Fjölskylduráð telur að að það óhagræði sem 5 vikna lokun leikskólanna hefur í för með sér fyrir foreldra vegi þyngra en sú fjárhæð sem sparast.
Fjölskylduráð mælir með því að gerðar verði kannanir meðal foreldra um hvaða tímabil verða fyrir valinu eins og gert var sl. vor með góðum árangri. Fjölskylduráð væntir þess að ákvörðun um hvenær leikskólarnir loka, liggi fyrir áður en árið er liðið.
6.Bæjarstjórnarfundur unga fólksins
911005
Fjallað um tillögu verkefnisstjóra æskulýðs- og forvarnarmála þar sem gerð er tillaga um að bæjarstjórnarfundur unga fólksins verði haldinn á 30 ára afmæli Arnardals 12. janúar nk.. Fjölskylduráð styður þessa tillögu og vísar málinu til bæjarstjórnar til ákvörðunar.
7.Málefni fatlaðra flutningur yfir til sveitarfélaga
905030
Framkvæmdastjóri lagði fram erindisbréf fyrir starfshópinn og bréf til bæjarráðs. Fjölskylduráð samþykkir erindisbréfið.
Fundi slitið.
Lagt fram.