Framkvæmdaráð (2009-2014)
Dagskrá
1.Íþróttamannvirki - breyting vinnufyrirkomulags
906175
Erindi VLFA dags. 2.10.2009 og yfirlýsing starfsmanna dags. 14.10.2009 þar sem mótmælt er áformum um að heimila íþróttaiðkun í íþróttamannvirkjum án þess að starfsmenn séu að störfum.
2.Framkvæmdastofa - Rekstrarstaða 2009
908018
Rekstrarstaða 1/1 - 30/9 2009 ásamt greinargerð framkvæmdarstjóra dags. 2. nóvember 2009.
Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir stöðu mála og þeim tillögum sem fram koma í greinargerð hans um fjárhagsstöðuna. Framkvæmdaráð samþykkir tillögur framkvæmdastjóra eins og fram koma í greinagerð hans og felur honum að koma þeim á framfæri við bæjarstjórn.
3.Viðhaldssamningur - framsal
911001
Bréf Glit málunar ehf dags. 2.11.2009, þar sem þess er óskað að Glit málun ehf yfirtaki samning Híbýlamálunar Garðars Jónssonar ehf við Akraneskaupstað en fyrirtækið hefur yfirtekið rekstur Híbýlamálunar.
Framkvæmdaráð getur ekki orðið við erindinu.
4.Íþróttahús - þrif og öryggisatriði
911002
Bréf Heilbrigðiseftirlits Vesturlands dags. 27.10.2009, vegna eftirlits með þrifum og öryggisatriðum íþróttamannvirkja. Gerðar eru nokkrar athugasemdir við aðbúnað og eftirlit og óskar HEV upplýsinga um hvernig bæjaryfirvöld hyggjast bregðast við framkomnum athugasemdum og framkvæmd þeirra.
Rekstrarstjóra íþróttamannvirkja falið að taka málið til skoðunar og leggja tillögur að úrlausnum fyrir Framkvæmdaráð innan tiltekinna tímamarka sem fram koma í erindi Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.
Fundi slitið.
Á fundinn mætti til viðræðna Hörður Jóhannesson, rekstrarstjóri íþróttamannvirkja. Framkvæmdastjóri gerði grein fyrir viðræðum sínum við starfsmenn íþróttamannvirkjanna svo og við fulltrúa VLFA og StRv. Framkvæmdaráð getur ekki orðið við kröfu starfsmanna og Verklýðsfélags Akraness.