Framkvæmdastjórn Byggðasafns Akraness og nærsveita (2001-2006)
Ár 2002, mánudaginn 8. apríl kl. 20:00 kom framkvæmdanefnd Byggðasafns Akraness og nærsveita saman til fundar á safnahúsinu að Görðum.
Til fundarins komu: Valdimar Þorvaldsson,
Jósef H. Þorgeirsson,
Anton Ottesen.
Auk þeirra sat fundinn Jón Allansson forstöðumaður.
Þetta gerðist á fundinum:
1. ?Írlandsstofa?
Lagt fram bréf bæjarritarans á Akranesi, dags. 4. apríl 2002, ásamt ljósriti af bréfi nefndar um írska daga á Akranesi 11.-14. júlí 2002, dags. 2. mars 2002, um Írlandsstofu sem hugsanlega mætti koma upp að Görðum. Ráðgert er að koma á fót nefnd til að kanna málið. Nefndin er jákvæð gagnvart þessu máli og samþykkir að vísa því til stjórnar Byggðasafns á Akranesi og nærsveita.
2. Rætt um fyrirhugaða bryggju, en til þeirra framkvæmda eru tiltækar kr. 2.000.000.- á fjárhagsáætlun. Samþykkt að fela forstöðumanni að kanna nánar hvað mögulegt væri að gera fyrir þessa upphæð á næstunni.
3. Framkvæmdastjórnin fór síðan og skoðaði framkvæmdir við Safnaskálann.
Fleira ekki gert, fundi slitið.
Jósef H. Þorgeirsson (sign)
Anton Ottesen (sign)
Valdimar Þorvaldsson (sign)