Menningarmála- og safnanefnd (2000-2008)
29. fundur menningarmála- og safnanefndar var haldinn í fundarherbergi, bæjarskrifstofu, Stillholti 16-18 21. nóvember 2004 og hófst kl. 10:30.
Mætt:
Hrönn Ríkharðsdóttir, formaður
Jósef Þorgeirsson
Jón Gunnlaugsson
Einnig sátu fundinn Halldóra Jónsdóttir bæjarbókarvörður og Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri menningar- og fræðslusviðs, sem ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Fjölskyldustefnumótun með tilliti til menningarmála.
Gengið var frá þeim áherslum sem menningarmála- og safnanefnd vill sjá í fjölskyldustefnu bæjarins. Sviðsstjóra falið að koma þeim á framfæri við stýrihóp um gerð fjölskyldustefnu.
2. Önnur mál.
Næsti fundur 29. nóvember kl. 17:00.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 12:45