Menningarmála- og safnanefnd (2000-2008)
41. fundur í menningarmála- og safnanefnd var haldinn mánudaginn 31. október 2005 í fundarherbergi bæjarskrifstofu og hófst hann kl. 17:00.
Mættir voru: Hrönn Ríkharðsdóttir, formaður
Sigríður Gróa Kristjánsdóttir
Jósef Þorgeirsson
Varamaður: Ragnheiður Ólafsdóttir
Auk þeirra Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari, sem einnig ritaði fundargerð.
Fyrir tekið:
1. Vökudagar.
Bæjarritari lagði fram dagskrá Vökudaga sem borin verður út í öll hús í bænum. Rætt um fyrirkomulag á setningarathöfn Vökudaga sem haldin verður á sal Tónlistarskólans þann 4. nóvember.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:50.