Menningarmálanefnd (2013-2014)
Dagskrá
1.Bæjarlistarmaður Akraness 2014
1404141
Nefndin fór yfir tilnefningar til bæjarlistamanns Akraneskaupstaðar 2014.
Nefndin tilnefnir bæjarlistamann og vísar ákvörðun sinni til afgreiðslu bæjarstjórnar.
2.Menningarstefna Akraneskaupstaðar
1401110
Nefndin fór yfir drög að menningarstefnu Akraneskaupstaðar.
Nefndin samþykkir drögin og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.
3.17. júní 2014
1403211
Verkefnastjóri kynnti fjölbreytta dagskrá þjóðhátíðardagsins. Menningarmálanefnd hvetur íbúa til að taka virkan þátt í dagskránni.
4.Írskir dagar 2014
1403019
Verkefnastjóri kynnti drög að dagskrá Írskra daga.
5.Aggapallur sumar 2014
1402113
Drög að dagskrá viðburða á Aggapalli kynnt.
Verkefnastjóri lagði fram yfirlit fimmtudagsviðburða á Aggapalli sumarið 2014.
Þar sem þetta er síðasti formlegi fundur nefndarinnar þetta kjörtímabil þakkar formaður nefndarmönnum og verkefnastjóra ánægjulegt samstarf.
Fundi slitið - kl. 19:00.