Skipulags- og umhverfisnefnd (2002-2006)
44. fundur skipulags- og umhverfisnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 17. nóvember 2003 kl. 15:30.
Mættir á fundi: |
Magnús Guðmundsson Lárus Ársælsson Kristján Sveinsson Eydís Aðalbjörnsdóttir Edda Agnarsdóttir |
Auk þeirra voru mættir |
Þorvaldur Vestmann, sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs og Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, skipulagsfulltrúi sem ritaði fundargerð. |
1. |
Deiliskipulag klasa 5 og 6, nýtt deiliskipulag |
|
Mál nr. SU030022 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Arkitektar Dennis og Hjördís kynna ný drög að deiliskipulagi í klasa 5 og 6 í Flatahverfi, þar sem tekið hefur verið tillit til athugasemda skipulags- og umhverfisnefndar.
Drögin rædd. Stefnt að kynningu á endanlegri tillögu á næsta fundi nefndarinnar.
2. |
Flatahverfi klasi 1 og 2, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SU030060 |
Halldóra Bragadóttir, arkitekt hjá Kanon arkitektum mætir á fundinn að ræða endurskoðun á deiliskipulagi einbýlishúsalóða meðfram Innnesvegi og Garðagrund í klasa 1 og 2 í Flatahverfi og möguleika á að liðka til í skipulagsskilmálum á parhúsalóðum við Eyrarflöt .
Bréf OR dags. 17.11.2003, vegna kostnaðar við breytingar á lögnum samfara breytingum á deiliskipulagi, lagt fram.
Samþykkt var að fela Kanon arkitektum ehf. að koma með hugmyndir að breytingu á skipulaginu í samræmi við umræður á fundinum. Fyrst verði lögð áhersla á að endurskoða parhúsalóðir við Eyrarflöt.
3. |
Hafnarsvæði, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SU030040 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Tillaga Magnúsar H. Ólafssonar að deiliskipulagsbreytingu Hafnarsvæðis vegna fiskmarkaðar og fóðurskemmu Stjörnugríss.
Nefndin samþykkir fyrirliggjandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hafnarinnar og leggur til að tillagan verði auglýst skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
4. |
Breiðarsvæði, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SU030069 |
Tillaga frá Hönnun, f.h. Haraldar Böðvarssonar hf, að deiliskipulagsbreytingu á Breiðarsvæði. Um er að ræða skilgreiningu á lóðarmörkum.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu að lóðamörkum og leggur til að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2.mgr. 26. gr skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, eigendum lóðanna á sem deiliskipulagsbreytingin nær til.
Lárus Ársælsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
5. |
Opin svæði, skreiðarstæði |
|
Mál nr. SU030061 |
490988-1229 Laugarfiskur hf., Laugum, 650 Laugar
Skipulagsfulltrúi hefur skoðað staðsetningu á skreiðarhjöllum í samvinnu við fulltrúa Laugafisks hf..
Staðsetning hjallana á útivistarsvæði kallar á aðalskipulagsbreytingu og nýtt deiliskipulag.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til tvö svæði sem koma til greina. Annars vegar að skreiðarhjöllunum verði fundinn staður á Breiðarsvæði, hins vegar upp með Berjadalsánni austan við gömlu sorphaugana.
6. |
Akratorgsreitur, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SU030044 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Verkáætlun og kostnaðarmat frá Hönnun ehf. vegna deiliskipulagsbreytinga á Akratorgsreit fyrir reit sem afmarkast af Akurgerði, Merkigerði, Kirkjubraut og Sunnubraut.
Skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að Hönnun verði falið að vinna deiliskipulagsbreytinguna skv. meðfylgjandi kostnaðarmati. Óskað er eftir að tillaga verði tilbúin fyrir áramót.
Verkefnið er ekki inni í þeim verkefnalista sem liggur til grundvallar fjárhagsáætlunar 2003.
Lárus Ársælsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.
7. |
Flatahverfi, klasi 1 og 2, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SU030068 |
Tillaga Kristins Ragnarssonar dags. 6. nóvember 2003 að deiliskipulagsbreytingu í klasa 1 og 2 í Flatahverfi vegna lóðarinnar nr. 2 við Brúarflöt. Breytingin gerir ráð fyrir tveimur stigahúsum í stað þriggja og ná þau 75 cm út fyrir bindandi byggingarlínu til norðurs.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir tillöguna Nefndin telur breytinguna það óverulega að engir hafi hagsmuna að gæta og felur skipulagsfulltrúa að afgreiða málið skv. 2.mgr. 26.gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
8. |
Suðurgata 47, 51 og 57, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SU030042 |
440203-3450 Akratorg ehf., Vesturgötu 41, 300 Akranesi
Ósk bæjarráðs um umsögn skipulags- og umhverfisnefndar vegna bréfs Akratorgs ehf. dags. 10. nóvember 2003 um verksvið byggingarnefndar og skipulags- og umhverfisnefndar.
Bréfritari hefur óskað eftir að erindið verði dregið til baka.
Skipulagsfulltrúi hefur tilkynnt bæjarráði um lyktir málsins.
9. |
Fundarboð, rafræn útsending fundarboða og gagna |
|
Mál nr. SU030070 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Tillaga skipulags- og umhverfisnefndar um að eftirleiðis verði fundarboð og fylgigögn einungis sent út með rafrænum hætti. Viðkomandi gögn liggi jafnframt frammi á fundum nefndarinnar.
Samþykkt.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:00.