Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)
14. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, miðvikudaginn 15. nóvember 2006 kl. 16:00.
Mætt á fundi: |
Magnús Guðmundsson, Helga Jónsdóttir, Sæmundur Víglundsson formaður, Hrafnkell Á Proppé, Bergþór Helgason |
Auk þeirra voru mætt: |
Runólfur Þ. Sigurðsson byggingarfulltrúi, Þorvaldur Vestmann sviðstjóri tækni- og umhverfissviðs og Hafdís Sigurþórsdóttir sem ritaði fundargerð. |
1. |
Húsverndunarsjóður, úthlutun styrks. |
|
Mál nr. BN060018 |
070563-4799 Valdimar Magnús Ólafsson, Vesturgata 51, 300 Akranesi
270566-5029 Ragnheiður Ósk Helgadóttir, Vesturgata 51, 300 Akranesi
Úthlutun styrks úr húsverndunarsjóði til Valdimars M Ólafssonar og Ragnheiðar Ó. Helgadóttur að upphæð kr. 400.000,-
Sæmundur Víglundsson, formaður skipulags- og byggingarnefndar kynnti forsendur og niðurstöðu nefndarinnar vegna styrkveitingar árið 2005. Afhenti hann síðan húseigendum, Valdimari M. Ólafssyni og Ragnheiði Ó. Helgadóttur sem gat ekki mætt.
2. |
Stekkjarholt 15, breytt útlit á gluggum |
(000.821.06) |
Mál nr. SB060107 |
090185-3579 Kristófer Jónsson, Stekkjarholti 15, 300 Akranesi
081086-3039 Anna Ósk Sigurgeirsdóttir, Stekkjarholti 15, 300 Akranesi
290442-3039 Iðunn Jómundsdóttir, Stekkjarholt 15, 300 Akranesi
Umsókn Önnu og Iðunnar um heimild til að breyta gluggapóstum á húseigninni Stekkjarholti 15, eins og fram kemur á meðfylgjandi rissi.
Gjöld kr. 5.827,-
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 6. nóv. 2006.
3. |
Álmskógar 17, nýtt hús |
|
Mál nr. SB060097 |
110274-4599 Dagur Þórisson, Reynigrund 42, 300 Akranesi
Umsókn Dags Þórissonar um heimild til þess að reisa einbýlihús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Ómars Péturssonar byggingarfræðings.
Stærðir húss 141,8 m2- 468,3 m3
bílgeymsla 32,1 m2- 99,6 m3
Gjöld kr. 2.646.926 ,-
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 6. nóv. 2006
4. |
Álmskógar 15, nýtt hús |
|
Mál nr. SB060095 |
270352-2869 Valgerður Sveinbjörnsdóttir, Vogabraut 36, 300 Akranesi
Umsókn Valgerðar Sveinbjörnsdóttur um heimild til þess að reisa einbýlihús með innbyggðri bílgeymslu, samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Stefáns Ingólfssonar arkitekts.
Stærðir húss 174,9 m2- 634,3 m3
bílgeymsla 35,3 m2- 110,9 m3
Gjöld kr.: 2.947.945 ,-
Samþykkt af byggingafulltrúa 3. nóv. 2006
5. |
Smiðjuvellir 17, nýtt verslunarhús. |
(000.541.06) |
Mál nr. SB060055 |
630688-1249 Bílás ehf, Þjóðbraut 1, 300 Akranesi
Umsókn Magnúsar Óskarssonar kt. 200252-3499 f.h. Bíláss ehf. um heimild til þess að reisa verslunarhús, samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Magnúsar H. Ólafssonar arkitekts.
Stærðir húss 1.178,0 m2- 8.414,9 m3
Gjöld kr.: 12.755.457,-
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 9. nóv. 2006
6. |
Innnesvegur 1, breyttir aðaluppdrættir |
|
Mál nr. SB060103 |
621297-7679 Bílver ehf, Akursbraut 13, 300 Akranesi
Umsókn Lúðvíks Davíðs Björnsonar f.h. Bílvers ehf. um heimild til að breyta aðaluppdráttum hússins og skipta húsinu í tvo eignarhluta, samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Lúðvíks D. Björnsson tæknifræðings.
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 10. nóv. 2006
7. |
Skógarhverfi, deiliskipulag - 2. áfangi |
|
Mál nr. SU060019 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Afgreiðsla tillögunnar.
Gylfi Guðjónsson arkitekt og Hrund Skarphéðinsdóttir verkfræðingur komu á fundinn og fóru yfir tillöguna ásamt byggingarskilmálum. Ákveðið var að gera smávægilegar orðalagsbreytingar á greinargerð sem arkitekt mun ganga frá.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir nýtt deiliskipulag 2. áfanga Skógarhverfis og leggur til við bæjarstjórn að deiliskipulagið verði auglýst samkvæmt 25. gr. Skipulags- og bygginarlaga nr. 73/1997.
8. |
Akurgerði 5, fyrirspurn. |
(000.861.14) |
Mál nr. SB060109 |
070483-3789 Björgvin Heiðarr Björgvinsson, Suðurgata 122, 300 Akranesi
Fyrirspurn Heiðars Björgvinssonar um að breyta verslunarhúsnæði (áður Traðarbakki) í íbúð.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt á erindið, en bendir á að skila þarf inn fullgildum teikningum og samþykki meðeigenda.
9. |
Vogabraut 5, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SB060111 |
681178-0239 Fjölbrautaskóli Vesturlands, Vogabraut 5, 300 Akranesi
Fyrirspurn Magnúsar H. Ólafssonar um breytingu á deiliskipulagi skv. meðfylgjandi uppdrætti.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt á erindið, en bendir á að skila þarf þarf inn uppdráttum vegna deiliskipulagsbreytingarinnar.
10. |
Hótel á Garðavelli, umsögn |
|
Mál nr. SB060063 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Erindi Guðmundar Egils Ragnarssonar, Guðjóns Theódórssonar og Ragnars Márs Ragnarssonar ásamt meðfylgjandi uppdráttum þar sem gerð er grein fyrir hugmyndum og einnig tölvubréf frá formanni Golfklúbbsins Leynis.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið um byggingu hótels á Garðavelli og vísar til bókunar nefndarinnar frá 20. sept. sl.
Nefndin bendir fyrirspyrjendum á að eftirtöldum atriðum þarf að fullnægja áður en til framkvæmda getur komið.
-
Breyta verður aðalskipulagi Akraneskaupstaðar með tilliti til landnotkunar svæðisins.
-
Breyta verður deiliskipulagi golfvallarsvæðisins, þar sem byggingarlóðin er skilgreind hvað varðar staðsetningu, stærð nýtingarhlutfall, hæð bygginga o.s.frv.
-
Verði fyrirhuguð framkvæmd á vegum annarra aðila en Golfklúbbsins er nauðsynlegt að skilgreind verði sérstök byggingarlóð innan golfvallarsvæisins sem viðkomandi aili fái úthlutað til byggingar.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:45.