Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)
18. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 18. desember 2006 kl. 16:00.
Mætt á fundi: |
Hrafnkell Á Proppé Bergþór Helgason Helga Jónsdóttir |
Auk þeirra voru mætt: |
Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð |
Byggingamál
1. |
Hlynskógar 5, nýtt einbýlishús |
(001.634.08) |
Mál nr. SB060141 |
290963-4519 Guðlaugur Kristinn Gunnarsson, Vesturgata 117, 300 Akranesi
Umsókn Sigurjóns Skúlasonar ehf kt: 690102-2930 f.h. Guðlaugs K. Gunnarssonar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Loga Már Einarssonar arkitekts.
Stærð húss 152,6 m2 - 559,1 m3
bílgeymsla 34,3 m2 - 106,3 m3
Gjöld kr.: 2.662.845,-
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 6. des. 2006
2. |
Álmskógar 14, nýtt einbýlishús |
(001.636.08) |
Mál nr. SB060142 |
030465-4589 Halldór Bragason, Frostafold 101, 112 Reykjavík
Umsókn Lúðvíks Davíðs Björnssonar kt: 141054-3259 f.h. Halldórs Bragasonar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Loga Már Einarssonar arkitekts.
Stærð íbúðar 234,4 m2 - 981,3 m3
bílgeymsla 27,3 m2 - 92,9 m3
Gjöld kr.: 3.693.815,-
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 6. des. 2006
3. |
Eikarskógar 4, nýtt einbýlishús |
(001.636.21) |
Mál nr. SB060147 |
100153-2629 Örlygur Stefánsson, Reynigrund 46, 300 Akranesi
Umsókn Halldórs Stefánssonar f.h. Örlygs Stefánssonar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Bjarna Vésteinssonar byggingafræðings.
Stærðir húss 150,1 m2 - 413,6 m3
bílgeymsla 28,9 m2 - 79,6 m3
Gjöld kr.: 2.659.118 ,-
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 11. des. 2006
4. |
Kirkjubraut 10, Breytingar inni og útlit |
(000.873.13) |
Mál nr. SB060140 |
430590-1549 Sveinbjörn Sigurðsson ehf, Smiðshöfða 7, 110 Reykjavík
Umsókn Halldórs Karlssonar fyrir hönd Sveinbjarnar Sigurðssonar ehf um heimild til innbyrðis breytinga á 1. hæð hússins í kaffistofu og upplýsingamiðstöð. Ásamt útlitsbreytingu glugga á norð-vesturhlið. Samkvæmt uppdráttum Lúðvíks Davíðs Björnssonar tæknifræðings
Meðfylgjandi er samþykki meðeigenda hússins.
Gjöld kr.: 5.841,-
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 4. des. 2006
5. |
Kirkjubraut 10, umsögn um áfengisleyfi |
(000.873.13) |
Mál nr. SB060149 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Bréf bæjarritara dags. 05. des. 2006, varðandi umsögn um leyfi til áfengisveitinga frá Maríu Guðrúnu Nolan, kt. 030179-4049, f.h. Nolan ehf. vegna veitingarhússins Skrúðgarðurinn, Kirkjubraut 10 á Akranesi.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd varðandi ofangreinda umsókn þar sem hún er í fullu samræmi við skipulags- og byggingarlög. Enda fari fram formleg úttekt á staðnum fyrir opnun.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa.
6. |
Eikarskógar 9, nýtt einbýlishús |
(001.637.07) |
Mál nr. SB060152 |
291261-5909 Halldór Stefánsson, Jörundarholt 121, 300 Akranesi
Umsókn Halldórs Stefánssonar um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Bjarna Vésteinssonar byggingafræðings.
Stærðir húss 132,3 m2 - 431,6 m3
bílgeymsla 30,8 m2 - 85,2 m3
Gjöld kr.: 2.651.617 ,-
Samþykkt af byggingafulltrúa þann 15. des. 2006
7. |
Meistararéttindi, húsasmiður |
|
Mál nr. SB060144 |
240446-3329 Hallmundur Andrésson, Borgarhraun 35, 810 Hveragerði
Umsókn Þorgils Sigurþórssonar kt. 210450-2389 fyrir hönd Hallmundar um heimild til þess að hafa umsjón með og bera ábyrgða á byggingarframkvæmdum innan lögsagnarumdæmis Akraness sem húsasmíðameistari.
Meðfylgjandi: Meistarabréf, útgefið 10.11.1975.
Meðfylgjandi ferilskrá frá Hveragerði
Gjöld kr.: 5.841,--
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 12. des 2006.
8. |
Meistararéttindi, Pípulagningameistari |
|
Mál nr. SB060146 |
290853-3389 Haukur Þór Adolfsson, Árgerði, 603 Akureyri
Umsókn Hauks Þór Adólfssonar kt: 290853-3389 um heimild til þess að hafa umsjón með og bera ábyrgða á byggingarframkvæmdum innan lögsagnarumdæmis Akraness sem pípulagnameistari.
Meðfylgjandi:
Meistarabréf, útgefið 21. Feb. 1980.
Ásamt vottun byggingarfulltrúa Reykjavíkur um starfsemi hans þar
Gjöld: 5.841,--kr.
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 8. des 2006.
9. |
Flóahverfi, deiliskipulag |
|
Mál nr. SU060023 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir arkitekt mætti á fund nefndarinnar og gerði grein fyrir tillögunni.
Skipulags- og umhverfisnefnd gerði nokkrar athugasemdir við tillöguna og leggur til að hún verði kynnt fyrir Orkuveitu Reykjavíkur og Vegagerðinni með breytingum. Endanleg tillaga verði lögð fyrir nefndina sem fyrst.
10. |
Viðjuskógar 8,10,12,14,16 og 18, fyrirspurn |
|
Mál nr. SB060117 |
690102-2930 Sigurjón Skúlason ehf, Ásabraut 11, 300 Akranesi
Fyrirspurn Sigurjóns Skúlasonar dags. 21 nóvember 2006 þar sem hann óskar eftir að fá að breyta deiliskipulagi Viðjuskóga 8,10,12,14, 16 og 18.
Breytingin felst í að breyta 4 raðhúsalóðum og 2 parhúsalóðum í 4 raðhúsalóðir á einni hæð.
(Erindið tekið aftur á dagskrá þar sem prentvilla var í erindi umsækjanda f. síðasta fundi. Þá var beðið um breytingu í einbýlishúsalóðir en átti að vera raðhúsalóðir.
Málinu frestað á síðasta fundi.
Skipulags- og byggingarnefnd hafnar erindinu á þeim forsendum að engin fagleg rök mæli með því.
11. |
Vogabraut 5, deiliskipulagsbreyting |
(000.564.02) |
Mál nr. SB060111 |
681178-0239 Fjölbrautaskóli Vesturlands, Vogabraut 5, 300 Akranesi
Fyrirspurn Magnúsar H. Ólafssonar um breytingu á deiliskipulagi skv. meðfylgjandi uppdrætti.
Skipulags- og byggingarnefnd tekur jákvætt í erindið og óskar eftir að hönnuður leggi fram deiliskipulagsuppdrátt.
12. |
Tindaflöt 12,14 og 16, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SB060062 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Uppdrættir frá Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur arkitekt hafa verið sendir út með grenndarkynningu til íbúa við Eyrarflöt 6,11 og 13 og Tindaflöt 5 og 8.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.
13. |
Kirkjubraut 8-10, Skrúðgarðurinn Akranesi, áfengisleyfi |
|
Mál nr. SB060145 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Bréf bæjarritara dags. 5. desember 2006 þar sem óskað er umsagnar vegna umsóknar um leyfi til áfengisveitinga fyrir Maríu Guðrúnu Nolan, kt. 030179-4049 f.h. Nolan ehf., kt. 990505-1640, vegna veitingahússins Skrúðgarðurinn, Kirkjubraut 8-10, Akranesi.
Sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs gerir ekki athugasemd við ofangreinda umsókn þar sem hún er í fullu samræmi við skipulags- og byggingarlög.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir afgreiðslu sviðsstjóra.
14. |
Fundaráætlun nefndarinnar, fyrir árið 2007 |
|
Mál nr. SB060005 |
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Fundaráætlun lögð fram.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 18:15