Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)
19. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, miðvikudaginn 20. desember 2006 kl. 08:00.
Mætt á fundi: |
Sæmundur Víglundsson formaður Hrafnkell Á Proppé Magnús Guðmundsson Bergþór Helgason Helga Jónsdóttir |
Auk þeirra voru mætt: |
Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Guðný J.Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð |
1. |
Vogabraut 5, deiliskipulagsbreyting |
(000.564.02) |
Mál nr. SB060111 |
681178-0239 Fjölbrautaskóli Vesturlands, Vogabraut 5, 300 Akranesi
Fyrirspurn Magnúsar H. Ólafssonar um breytingu á deiliskipulagi skv. meðfylgjandi uppdrætti.
Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir tillöguna og leggur til við bæjarstjórn að tillagan verði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 fyrir lóðahöfum við Brekkubraut 16,18, 20, 22, 24, 26, 28 og Heiðarbraut 60, 63, 65 og Vogabraut 3.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 8.20