Skipulags- og byggingarnefnd (2006-2008)
29. fundur skipulags- og byggingarnefndar Akraness haldinn í fundarsal tækni- og umhverfissviðs Dalbraut 8, mánudaginn 23. apríl 2007 kl. 16:00.
Mætt á fundi: |
Sæmundur Víglundsson formaður Hrafnkell Á Proppé Magnús Guðmundsson Helga Jónsdóttir Guðmundur Magnússon |
Auk þeirra voru mætt: |
Þorvaldur Vestmann sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs Runólfur Þór Sigurðsson byggingarfulltrúi Guðný J. Ólafsdóttir sem ritaði fundargerð |
Byggingarmál
1. |
Húsfriðunarsjóður 2007, umsóknir um styrki |
|
Mál nr. SB070086
|
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Eftirtaldir aðilar hafa skilað inn umsóknum um styrk úr Húsverndunarsjóði Akraness árið 2007 :
Húseignir og umsækjendur:
Vesturgata 24
María Þórunn Friðriksdóttur
Vesturgata 46 (Auðnar)
Guðmundir M. Þórarinsson og María Edda Sverrisdóttir
Mánabraut 9
Hallveig Skúladóttir
Presthúsabraut 28 (Litli-Teigur)
Jónas B. Guðmarsson og Sigurborg Þórsdóttir
Skagabraut 41 (Fagragrund)
Unnur Leifsdóttir
Bakkatún 20
Sigríður Hjartardóttir
Háteigur 2 (Minniborg)
Indíanna Unnarsdóttir og Sigurður Már Gunnarsson
Vesturgata 41
Kristinn Pétursson og Hildur Björnsdóttir
Presthúsabraut 29
Einungis umsögn Húsafriðunarnefndar ríkisins þar sem fram kemur að aðili umsagnarbeiðni er Hilmar Magnússon
Lagt fram til kynningar, forstöðumaður byggðasafnsins gefur umsögn.
2. |
Kirkjubraut 4-6, innbyrðis breytingar |
(000.873.09) |
Mál nr. SB070088
|
040146-2299 Daníel Daníelsson, Furugrund 29, 300 Akranesi
Umsókn Daníels um heimild til innbyrðis breytinga samkvæmt aðaluppdráttum Jóhannesar Ingibjartssonar byggingarfræðings. Breytingarnar felast í aðbreyta hluta 0201 úr skrifstofurými í íbúð aftur og 0301 úr skrifstofu í íbúð, stækka verslun 0101 inn í rými sem áður tilheyrði Suðurgötu. Hluti þess rýmis verði að stúdíoíbúð með aðkomu að Suðurgötu. Svæðið og lóðin sem áður tilheyrðu Suðurgötu eru búin að fara í skipulagsferli og tilheyra nú Kirkjubraut 4-6.
Ekki er verið að búa til ný eignarrými. Gerður verður eignaskiptasamningur um eignirnar eftir þessi umskipti
Gjöld: kr. 7157,--
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 04.04.2007
3. |
Dalbraut 1 - Miðbæjarreitur, anddyri og breyting á innra skipulagi. |
|
Mál nr. SB060092
|
600269-2599 Smáragarður ehf, Skemmuvegi 2a, 200 Kópavogur
Umsókn Elínar Gunnlaugsdóttur kt: 011264-3449. f.h. Smáragarðs ehf um heimild til þess að bæta anddyri við suðurenda og setja rýmingarleið á gafl og breyta innra skipulagi á þeirri álmu og einnig breyta innra skipulagi í B-eignarrými samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Elínar Gunnlaugsdóttur arkitekts.
Stækkun anddyris 18,1 m2 - 63,9m3
Gjöld kr.: 184.908 ,-
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 17.04.2007
4. |
Víðigrund 18, Stækkun á húsi |
(001.942.10) |
Mál nr. SB070051
|
270959-5479 Halldór Jónsson, Háholti 3, 300 Akranesi
130755-5429 Dagrún Dagbjartsdóttir, Miðtún 16, 400 Ísafjörður
Umsókn Magnúsar H. Ólafssonar arkitekt f.h. Halldórs og Dagrúnar Dagbjartsdóttur um innbyrðis breytingar og stækkun á húsinu til suðvesturs. Stækkunin hefur farið í skipulagsferli með grenndarkynningu.
Stækkun. 9,3m2 og 25,1m3
Gjöld: 178.784,--kr.
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 16.04.2007
5. |
Seljuskógar 7, nýtt einbýlishús |
(001.637.27) |
Mál nr. SB070085
|
110369-3019 Einar Benediktsson, Höfðabraut 2, 300 Akranesi
Umsókn Einars Benediktssonar kt: 110357-3019 um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi aðaluppdráttum Eyjólfs Valgarðssonar tæknifræðings.
Stærðir húss 204,3 m2 - 783,4 m3
Bílgeymsla 43,9 m2 - 154,7 m3
Gjöld kr.: 4.243.402 ,-
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 17.04.2007
6. |
Smiðjuvellir 15, uppúrtekt fyrir bílastæðum og fylling |
(000.541.05) |
Mál nr. SB070089
|
480794-2069 Bifreiðastöð Þórðar Þ Þórð ehf, Dalbraut 6, 300 Akranesi
Umsókn Þórðar Þ. Þórðarsonar f.h. Bifreiðstöð ÞÞÞ
Um að taka upp úr og grafa niður á fast fyrir bílastæðum alls 2800m2 og fylla í þjöppuðum lögum með möl á lóðinni
Gjöld: 1.068.958,--kr.
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 17.04.2007
7. |
Eikarskógar 5, nýtt einbýlishús |
(001.637.09) |
Mál nr. SB070097
|
150273-5019 Valgeir Þór Guðjónsson, Einigrund 7, 300 Akranesi
Umsókn Valgeirs um heimild til þess að reisa einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu samkvæmt meðfylgjandi uppdráttum Sæmundar Eyríkssonar verkfræðings.
Stærðir húss 158,7 m2 - 537,8 m3
Bílgeymsla 65,5 m2 - 187,2 m3
Gjöld kr.: 3.677.236 ,-
Samþykkt af byggingarfulltrúa þann 19.04.2007
Skipulagsmál
8. |
Leynislækur, byggingarsvæði |
|
Mál nr. SB070078
|
681096-2219 Neshjúpur ehf., Reynigrund 44, 300 Akranesi
Bréf bæjarráðs dags. 12. apríl 2007 þar sem óskað er eftir að skipulags- og byggingarnefnd endurskoði fyrri afgreiðslu sína með tilliti til breytinga á aðalskipulagi.
Skipulags- og byggingarnefnd frestar afgreiðslu málsins til næsta fundar og felur sviðsstjóra að taka saman gögn um málið.
9. |
Birkiskógar 4, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SB070082
|
281273-3969 Steinunn Kristín Pétursdóttir, Bjarkargrund 14, 300 Akranesi
Skipulags- og byggingarnefnd lagði til við bæjarstjórn að breytingin yrði grenndarkynnt skv. 2. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Eigendur næstu lóða þ.e. við Birkiskóga 2 og 6, og Skógarflatar 17 hafa skrifað undir samþykki við breytinguna.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að breytingin verði samþykkt.
10. |
Laugarbraut 6, Vesturgata 25 og 53., nýting lóða |
|
Mál nr. SB070026
|
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Bréf bæjarstjóra Gísla S. Einarssonar dags. 24. janúar 2007 þar sem hann óskar eftir tillögum frá sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs og skipulags- og byggingarnefnd um notkun lóðanna Laugarbraut 6 og Vesturgötu 25 og 53.
Málið var á dagskrá 20. febrúar en var þá frestað.
Tillögur lagðar fram á fundinum.
Nefndin leggur til að lóðinni númer 6 við Laugarbraut verði ekki breytt en bílastæðin verði malbikuð m.a. fyrir kirkjugesti.
Ekkert deiliskipulag er til fyrir svæðið á horni Vesturgötu og Krókatúns og því er lagt til að unnin verði tillaga að deiliskipulagi fyrir svæðið sem afmarkast af Vesturgötu, Krókatúni og Deildartúni.
Sviðsstjóra falið að koma með tillögu um skipulagshönnuð.
11. |
Innnesvegur - Sólmundarhöfði - Dælustöð OR, deiliskipulagsbreyting |
|
Mál nr. SB070033
|
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
551298-3029 Orkuveita Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, 110 Reykjavík
Breyting á deiliskipulagi vegna byggingar dælustöðvar OR við Innnesveg.
Tillagan var auglýst skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði samþykkt.
12. |
Höfðasel 15, stækkun lóðar |
|
Mál nr. SU050081
|
520789-0739 Gámaþjónusta Akraness ehf, Smáraflöt 2, 300 Akranesi
Tillaga Magnúsar H. Ólafssonar að breyttu skipulagi lögð fram.
Deiliskipulagið var auglýst skv. 1. mgr. 26 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.
Engar athugasemdir bárust.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að skipulagið verði samþykkt.
13. |
Smiðjuvellir 32, innkeyrsla |
|
Mál nr. SB060085
|
410169-4449 Akraneskaupstaður, Stillholti 16-18, 300 Akranesi
Erindi Hermanns Gunnlaugssonar landslagsarkitekts þar sem hann f.h. Sveinbjörns Sigurðssonar ehf. óskar eftir deiliskipulagsbreytingu þar sem innakstur verði leyfður af Þjóðbraut inná lóð númer 32.
Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að breytingin verði auglýst skv. 1. mgr. 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með smávægilegum breytingum sem ræddar voru á fundinum.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 17:30