Skipulags- og umhverfisráð
Dagskrá
1.Skógræktarfélag Akraness - land til skógræktar
1409139
Erindi Skógræktarfélags Akraness dags. 13.10.2014, þar sem óskað er eftir landi til skógræktar neðan Slögu. Bæjarráð vísaði erindinu til umsagnar skipulags- og umhverfisráðs.
Skipulags- og umhverfisráð tekur jákvætt í erindið og felur garðyrkjustjóra að vinna frekar að málinu í samræmi við umræður á fundinum.
2.Þjónustugjaldskrár 2015 - ráðstöfun fjármuna
1411069
Bókun bæjarráðs á fundi 5. des. 2014.
Lagt fram.
3.Deilisk. - Smiðjuvalla, Kalmansvellir 6 og Smiðjuvellir 3.
1401126
Umsókn Runólfs f.h. Akraborgar um breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til við bæjarstjórn að auglýsa deiliskipulagsbreytinguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Fundi slitið - kl. 17:00.