Skipulags- og umhverfisráð
Dagskrá
1.Umhverfisstefna Akraneskaupstaðar
1811112
Umhverfisstjóri gerir grein fyrir vinnu sinni vegna kostnaðar og tímaáætlunar við gerð umhverfisstefnu Akraneskaupstaðar.
2.Aðalskipulag Akraness M2 - breyting á miðsvæði (Akratorg, Kirkjubraut,Stillholt)
1811021
Lýsing á breytingu aðal- og deiliskipulags miðsvæðis M2 (Akratorg, Kirkjubraut, Stillholt) var auglýst 21. nóvember sl. og óskað eftir ábendingum við lýsinguna t.o.m. 13. desember 2018. Engar athugasemdir bárust.
Umsagnaraðilum var sent bréf dags. 16. nóvember sl. þar sem óskað var eftir umsögnum t.o.m. 13. desember 2018. Umsagnir sem borist hafa eru meðfylgjandi fundarboði.
Umsagnaraðilum var sent bréf dags. 16. nóvember sl. þar sem óskað var eftir umsögnum t.o.m. 13. desember 2018. Umsagnir sem borist hafa eru meðfylgjandi fundarboði.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til að þegar búið er að vinna fullbúin skipulagsgögn verði þau kynnt almenningi t.d. með opnu húsi/kynningafundi. Í framhaldinu mun skipulags- og umhverfisráð fjalla um málið að nýju.
3.Deilisk. Stofnanareitur - Kirkjubraut 39
1807077
Kynning á deiliskipulagsuppdrætti fyrir breytingu á Kirkjubrautar 39.
Skipulags- og umhverfisráð leggur til að þegar búið er að vinna fullbúin skipulagsgögn verði þau kynnt almenningi á opnu húsi/kynningarfundi. Deiliskipulagsbreytingin skal kynnt og auglýst samhliða aðalskipulag Akranes, breyting á miðsvæði M2 (Akratorg, Kirkjubraut, Stillholt).
Í framhaldinu mun skipulags- og umhverfisráð fjalla um málið að nýju.
Í framhaldinu mun skipulags- og umhverfisráð fjalla um málið að nýju.
4.Akranes ferja - flóasiglingar 2019
1812094
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs fór yfir stöðu málsins.
Fundi slitið - kl. 10:50.
Sindri Birgisson vék af fundi 9:15.