Skóla- og frístundaráð
Dagskrá
1.Mötuneyti grunnskóla - framtíðarsýn
2405056
Kynning á tilboði í aðkeypta ráðgjafavinnu vegna undirbúnings útboðs.
Lagt fram til kynningar.
2.Samfélagsmiðstöðin Dalbraut 8 - uppbygging- framkvæmd verkefnisins
2205146
Staða útboðs vegna uppbyggingar Samfélagsmiðstöðvar lögð fram til kynningar.
Skóla- og frístundaráð fór yfir framlagða tímaáætlun vegna uppbyggingar Samfélagsmiðstöðvar á Dalbraut 8.
3.Hreyfivika ÍSÍ 2024
2409012
Erindi frá forstöðumanni íþróttamannvirkja þar sem óskað er eftir að Akraneskaupstaður veiti frítt í sund á Jaðarsbökkum vikuna 21.-27. september og Guðlaugu og Bjarnalaug helgina 21.-22. september, sem lið í Hreyfiviku ÍSÍ.
Skóla- og frístundaráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til afgreiðslu hjá bæjarráði.
4.Fundargerðir 2024 - menningar- og safnanefnd
2401006
Fundargerðir menningar- og safnanefndar lagðar fram til kynningar.
Skóla- og frístundaráð færir sérstakar þakkir til allra þeirra sem komu að skipulagi, framkvæmd og þátttöku í glæsilegri Barnamenningarhátið sem haldin var á Akranesi dagana 23.-31. maí 2024.
Fundi slitið - kl. 09:30.