Fara í efni  

Skóla- og frístundaráð

252. fundur 18. desember 2024 kl. 15:00 - 17:45 í Grundaskóla
Nefndarmenn
  • Jónína Margrét Sigmundsdóttir formaður
  • Liv Aase Skarstad varaformaður
  • Þórður Guðjónsson aðalmaður
  • Sigurður Arnar Sigurðsson áheyrnarfulltrúi skólastjóra grunnskóla
  • Hrafnhildur Jónsdóttir áheyrnarfulltrúi kennara grunnskóla
Starfsmenn
  • Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
  • Maren Ósk Elíasdóttir verkefnastjóri
Fundargerð ritaði: Dagný Hauksdóttir sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs
Dagskrá

1.Tækjakaup í C-álmu Grundaskóla

2412172

Ósk um tilfærslu fjármagns af launaliðum vegna tækjakaupa fyrir nýbyggingu Grundaskóla.

Sigurður Arnar Sigurðsson skólastjóri Grundaskóla situr fundinn undir fundarliðum 1-3.
Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að heimila tilfærslu fjármuna af launaliðum Grundaskóla til tækjakaupa fyrir nýbyggingu skólans, C-álmu, sem tekin verður í notkun snemma á nýju ári.

2.Starfsáætlun grunnskóla 2024-2025

2412027

Sigurður Arnar Sigurðsson kynnir starfsáætlun Grundaskóla fyrir skólaárið 2024-2025.
Skóla- og frístundaráð staðfestir starfsáætlun Grundaskóla fyrir skólaárið 2024-2025 og þakkar Sigurði Arnari fyrir góða yfirferð.

3.Opni skólinn - Heillaspor

2412174

Skóla- og frístundaráð fær kynningu á þróunarverkefni Grundaskóla sem skólastjórnendur og starfsfólk hafa unnið að frá árinu 2021.
Skóla- og frístundaráð þakkar Sigurði Arnari fyrir greinargóða kynningu á framsæknu og gróskumiklu skólastarfi í Grundaskóla.
Sigurður Arnar Sigurðsson víkur af fundi.

4.Tómstundaframlag - vinnumhópur um endurskoðun

2312220

Bæjarráð fól skóla- og frístundaráði að rýna fyrirkomulag og nýtingu tómstundaframlags Akraneskaupstaðar og leggja fram tillögur að hækkun og/eða breytingum á fyrirkomulagi til hagsbóta fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.

Guðmunda Ólafsdóttir framkvæmdarstjóri ÍA situr fundinn undir þessum dagskrárlið.
Skóla- og frístundaráð leggur til við bæjarráð að tómstundaframlag fyrir árið 2025 verði hækkað um 3,5%. Ráðið leggur einnig til eftirfarandi breytingar á fyrirkomulagi úthlutunar: Tómstundaframlagið gildi fyrir 5-17 ára börn (áður 6-18 ára). 5 ára börn fái hálfan styrk en 6-17 ára fullan styrk. Áfram tekur styrkupphæð mið af fjölda barna á heimili. Skóla- og frístundaráð leggur einnig til að 18 ára ungmennum standi til boða árskort í þrek- og sund í íþróttamannvirkjum Akraneskaupstaðar þeim að kostnaðarlausu. Fyrirkomulag þetta byggir á gögnum um nýtingu tómstundaframlags s.l. tveggja ára - rétt rúmlega 30% 18 ára ungmenna hafa nýtt tómstundaframlagið. Skráðir 5 ára iðkendur hjá ÍA eru 93, eða um 80% 5 ára barna á Akranesi. Meðaltals nýtingarhlutfall tómstundaframlags á Akranesi fyrir árið 2024 er 77%. Kostnaði verður mætt innan fjárheimilda skóla- og frístundasviðs.
Guðmunda Ólafsdóttir víkur af fundi.

5.Gjaldskrá frístundadvalar utan lögheimilissveitarfélags

2312219

Lagt er til að gjaldskrá vegna frístundadvalar utan lögheimilissveitarfélags fyrir árið 2025 hækki um 15%. Þá er innifalið gjald vegna aðstöðu, efniskostnaðar og umsýslu.
Skóla- og frístundaráð samþykkir 15% hækkun á gjaldskrá vegna frístundadvalar utan lögheimilissveitarfélags og vísar málinu til umræðu hjá bæjarráði.

6.Skref fyrir skref - móttökuferli

2412175

Verkefnastjóri kynnir fyrir ráðinu verkefnið Skref fyrir skref sem er í þróun. Um er að ræða móttökuferil fyrir aðflutt börn í sveitarfélaginu og á að ná til leik- og grunnskóla, frístundaheimila og íþrótta- og tómstundastarfs. Verkefnið tengist verkefnum verkefnastjóra farsæls frístundastarfs og samræmdri móttöku flóttamanna, en nær í raun víðar og er umfangsmeira og byggir á þrepaskiptum stuðningi.
Skóla- og frístundaráð þakkar fyrir góða kynningu.

7.Invest in play - tengjumst í leik

2408055

Leikskólar Akraneskaupstaðar luku nýverið við að halda foreldranámskeiðið Tengjumst í leik í samvinnu við Invest in play® og Föruneyti barna. Akranes er fyrsta sveitafélagið á Íslandi sem bauð foreldrum barna í öllum sínum leikskólum á námskeiðið án endurgjalds. Foreldrar 48 barna á Akranesi sátu námskeiðið í fjórum leikskólum.
Skóla- og frístundaráð fagnar vel heppnuðu verkefni og hvetur foreldra leikskólabarna til að kynna sér efnið og þiggja boð á námskeið.

8.Námsleyfi í leikskóla 2024

2412013

Úthlutun fjármagns til leikskóla vegna starfsmanna sem sækja nám í leikskólafræðum með vinnu.
Skóla- og frístundaráð samþykkir tillögu að greiðslum til leikskólanna vegna náms leikskólastarfsmanna sem stunda nám í leikskólafræðum samhliða vinnu og fá að sækja tíma á launum. Ekki er gert ráð fyrir viðauka vegna þessa kostnaðar þar sem fjármagn er til í fjárhagsáætlun sviðsins

Fundi slitið - kl. 17:45.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-12:00