Skólanefnd (2000-2008)
Halla Ingibjörg Guðmundsdóttir
Ingibjörg Valdimarsdóttir,
Gunnar Freyr Hafsteinsson
Áheyrnarfulltrúar:
Sigurður A. Sigurðsson, aðstoðarskólastjóri Grundaskóla
Arnbjörg Stefánsdóttir, skólastjóri Brekkubæjarskóla
Björg Jónsdóttir, fulltrúi leikskólastjóra
Ásta Huld Jónsdóttir, fulltrúi leikskólastarfsfólks
Ingibjörg Jóna Jónsdóttir, fulltrúi grunnskólakennara
Sigurveig Kristjánsdóttir, fulltrúi grunnskólakennara
Hjördís Grímarsdóttir, fulltrúi foreldra leikskólabarna
Valdís Sigurðardóttir fulltrúi foreldra grunnskólabarna
Fundinn sat einnig
2. Beiðni um frávik frá skóladagatali. Sigríður Ragnarsdóttir, kennari kynnti Uppbyggingarstefnuna sem Grundaskóli er að innleiða. Grundaskóli hefur óskað eftir því að fá að fara til BNA í vetrarfríinu og hafa 5 daga til umráða til að sækja námskeið og fara í skólaheimsóknir. Sigríður svaraði síðan fyrirspurnum.
3. Skólamálasamþykkt Sambands ísl. sveitarfélaga. Lögð fram.
4. Ályktanir frá aðalfundi Félags leikskólakennara. Lagðar fram.
5. Nafn á nýjan leikskóla sem tekur til starfa við Ketilsflöt í ágúst n.k. Skólanefnd leggur til að nýi leikskólinn fái nafnið Akrasel. Fyrir nokkrum árum var starfandi lítill leikskóli á Akranesi sem bar nafnið Akrasel. Nafnið er þjálft og fellur vel að nöfnum annarra leikskóla á Akranesi.
6. Nýr grunnskóli. Fulltrúar úr skólanefnd hafa skoðað nýja skóla í Reykjavík, Hafnarfirði og Árborg. Ljóst er að ekki mun takast að reisa nýjan skóla fyrir haustið 2009 og því leggur skólanefnd til við bæjarráð að skólahald hefjist á lóð nýja skólans í lausum kennslustofum haustið 2009 og þannig gefist góður tími að hanna nýja skólabyggingu og móta það skólastarf sem þar mun fara fram. Umræður urðu um ýmis atriði sem tengjast nýjum skóla og áhrif hans á umhverfi sitt.
7. Önnur mál. Sigurveig og Ingibjörg Jóna gerðu að umtalsefni það ástand sem er í grunnskólunum að kennarar hafa ekki sinnt forfallakennslu að undanförnu til að leggja áherslu á beiðni sína um greiðslu frá Akraneskaupstað vegna álags á skólaárinu. Málin rædd.
Skólanefnd fagnar því að grunnskólarnir hafa fengið styrki úr Þróunarsjóði Menntamálaráðuneytis. Brekkubæjarskóli fékk styrk vegna gerðar handbókar um sérkennslu og Grundaskóli vegna verkefnisins ?Varstu til í gamla daga??
Fleira ekki gert fundi slitið kl. 20:15