Starfshópur um atvinnumál (2011-2013)
20. fundur starfshóps um atvinnumál, haldinn í fundarherbergi 3. hæð, Stillholti 16-18, 7. júní 2012 og hófst hann kl. 20:00.
Fundinn sátu:
Hörður Svavarsson, aðalmaður
Ólafur Adolfsson, aðalmaður
Guðni Tryggvason, aðalmaður
Ingibjörg Valdimarsdóttir (IV), formaður
Guðjón Steindórsson, verkefnisstjóri
Fundargerð ritaði: Guðjón Steindórsson, verkefnastjóri.
Fyrir tekið:
1. 1206040 - Háhiti - atvinnumálanefnd
Fundargerð aðalfundar Háhita frá 30. maí 2012 lögð fram.
Kjörið var í nýja stjórn Háhita á aðalfundi og hana skipa:
Ingibjörg Valdimarsdóttir, stjórnarformaður
Guðni Tryggvason
Hörður Svavarsson
Ólafur Adólfsson
Sævar Freyr Þráinsson
2. 1205062 - Þróunar- og nýsköpunarfélag Hvalfjarðarsveitar, Akraness og Faxaflóahafna.
Drög að tillögu lögð fram á fundinum.
Tillögurnar fela í sér fyrirkomulag á stofnun og rekstri fyrirhugaðs þróunar- og nýsköpunarfélags.
Starfshópur leggur til að tillögur verði lagðar fyrir bæjarráð til samþykktar.
3. 1106158 - Innovit - atvinnu- og nýsköpun.
Uppgjör vegna undirbúningsvinnu á nýsköpunar- og atvinnumálahelgi sem haldin var á Akranesi helgina 27.-29.apríl.
Bráðabirgðaruppgjör var kynnt en endanlegt uppgjör verður tekið fyrir á næsta fundi.
4. 1109151 - Framleiðsla á innrennslislyfjum.
Bréf frá Centra ráðgjöf dags. 7. maí 2012, vegna viðbótarreiknings.
Drög að bréfi til Velferðarráðuneytisins vegna verkefnisins lagt fram. Verkefnastjóra falið að klára bréfið og senda til ráðherra.
5. 1203161 - Undirbúningsfundur vegna IPA umsókna
Kynning frá Önnu Margréti Guðjónsdóttur, verkefnastjóra hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi, um IPA umsókn Vesturlands.
IPA eru aðlögunarstyrkir frá Evrópusambandinu til efnahags- og atvinnuþróunnar með tilvísun í European Regional Development Fund og European Social Fund. Samband sveitarfélaga á Vesturlandi sækir um styrki í þennan sjóð nýsköpunarverkefna á Vesturlandi.
Lagt fram til kynningar.
6. 1107114 - Atvinnumálanefnd
Starfshópurinn ræddi stöðu og framtíð Sementsverksmiðjunnar og hugsanleg áform þeirra.
Einnig ræddi nefndin nokkra nýja kosti sem eru í skoðun hjá nefndinni um atvinnuuppbyggingu á Akranesi.
Fleira ekki gert, fundi slitið kl. 22:00.