Fara í efni  

Starfshópur um skipulag Jaðarsbakka

4. fundur 19. júní 2024 kl. 16:30 - 18:00 í Mörk
Nefndarmenn
  • Sædís Alexía Sigurmundsdóttir formaður
  • Guðmundur Ingþór Guðjónsson aðalmaður
  • Eggert Herbertsson aðalmaður
  • Gyða Björk Bergþórsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri
  • Halla Marta Árnadóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Valdís Eyjólfsdóttir verkefnastjóri
Dagskrá

1.Deiliskipulag Jaðarsbakkar og frumhönnun

2304154

Efni fundar er svæðið austan Akraneshallar eins og ákveðið var á síðasta fundi hópsins.



Fjarverandi Daníel Rúnarsson aðalmaður.
Farið yfir frumhönnun Basalts á íþróttasvæðinu austan megin við Akraneshöll. Rætt um tillögu að hreyfiás á svæðinu meðfram Langasandi.

Rætt um framvkæmdir við grjótgarð á svæðinu af hálfu Vegagerðarinnar sem eru fyrirhugaðar árið 2025, breikkun og hækkun garðsins. Gert verður ráð fyrir breikkun göngustígsins meðfram Langasandi samhliða.

Ákveðið að óska eftir því að Kristján Ásgeirsson í Mannvirkjanefnd KSÍ komi á fund starfshópsins, ásamt fulltrúum frá Basalt, og fá ábendingar og samtal varðandi þær hugmyndir sem eru uppi um skipulag á svæðinu með tilliti til knattspyrnunnar.

Fundi slitið - kl. 18:00.

   
Fara efst
á síðu
  • AkraneskaupstaðurDalbraut 4, 300 Akranes
    Kt: 410169-4449

    Persónuverndarstefna
  • 433 1000
    Skrifstofan er opin sem hér segir:
    Mánu- fimmtudaga kl. 09:00-15:00
    Föstudaga kl. 09:00-14:00