Stjórn Akranesstofu (2008-2013)
33. fundur stjórnar Akranesstofu, haldinn í fundarherbergi 1. hæð, Stillholti 16-18, þriðjudaginn 7. september 2010 og hófst hann kl. 17:30
Fundinn sátu:
Gunnhildur Björnsdóttir, formaður
Hjördís Garðarsdóttir, varaformaður
Björn Guðmundsson, aðalmaður
Þorgeir Jósefsson, aðalmaður
Anna Leif Elídóttir, aðalmaður
Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri
Elsa Lára Arnardóttir, varamaður
Fundargerð ritaði: Tómas Guðmundsson, verkefnastjóri Akranesstofu.
Fyrir tekið:
1008029 - Upplýsingamiðstöð ferðamanna | ||
Erindi bæjarráðs Akraness dags. 26. ágúst 2010 varðandi málefni upplýsingamiðstöðvar. | ||
Formaður gerði grein fyrir hugmyndum sem ræddar voru á fundi formanns og verkefnastjóra með bæjarráði þann 26. ágúst sl. um möguleika þess að efla upplýsingagjöf til gesta og ferðafólks á Akranesi, m.a. með því að opna sérstaka upplýsingamiðstöð miðsvæðis á Akranesi. Stjórn Akranesstofu felur verkefnastjóra að boða þjónustuaðila á Akranesi til fundar við stjórnina um málefni upplýsingamiðstöðvar og ferðaþjónustu almennt á Akranesi. | ||
|
||
2. |
1008055 - Norðurlandameistaramót í eldsmíði 2011 - styrkbeiðni | |
Erindi Guðmundar Sigurðssonar, dags. 11. ágúst 2010 varðandi möguleika þess að halda Norðurlandameistaramót eldsmiða á Akranesi sumarið 2011. | ||
Stjórn Akranesstofu fagnar því frumkvæði bréfritara að hvetja til þess að slíkt mót verði haldið á Akranesi. Verkefnastjóra er falið að ræða við bréfritara og útfæra nánar með honum mögulegan stuðning Akraneskaupstaðar við verkefnið og umfang slíks stuðnings. | ||
|
||
3. |
1006124 - Akranesstofa - rekstraryfirlit 2010 | |
Rekstraryfirlit Akranesstofu og kostnaður vegna hátíðahalda og viðburða. | ||
Verkefnastjóri gerði grein fyrir rekstrarstöðu Akranesstofu og fór yfir fjármál vegna hátíðahalda og viðburða. Rekstur almennrar starfsemi Akranesstofu er á áætlun en hátíðahöld og viðburðir eru nokkuð umfram fjárhagsáætlun ársins og rakti verkefnastjóri helstu ástæður þess. Stjórn Akranesstofu felur formanni og verkefnastjóra að kynna stöðuna fyrir bæjarráði. | ||
|
||
4. |
0903133 - Kútter Sigurfari | |
Umræður um viðauka við samning við mennta- og menningarmálaráðuneytið um varðaveislu Kútters Sigurfara og skipan starfshóps til að hafa umsjón með framgangi verkefnisins. | ||
Formaður gerði grein fyrir hugmyndum um að sett verði á stofn sérstök framkvæmdanefnd um varðveislu Kútters Sigurfara en hlutverk nefndarinnar er að leggja fram tillögur um með hvaða hætti skuli staðið af varðveislu skipsins. Stjórn Akranesstofu samþykkir stofnun nefndarinnar og felur verkefnastjóra að vinna drög að erindisbréfi slíkrar nefndar og leggja fram á næsta fundi stjórnar. | ||
|
||
5. |
0901156 - Viskubrunnur í Álfalundi | |
Verkefnastjóri kynnir framgang verkefnisins og næstu skref. | ||
| ||
|
||
6. |
1008027 - Bæjarlistamaður Akraneskaupstaðar 2010 | |
Á 31. fundi stjórnar Akranesstofu kom fram tillaga um að gefa almenningi kost á að tilnefna bæjarlistamann og koma með tillögur um menningarverðlaunahafa með rafrænum hætti á vef Akraneskaupstaðar. | ||
Verkefnastjóri kynnti veflausn sem gerir tilnefningar almennings á Akranesvefnum mögulegar. Stjórn Akranesstofu felur verkefnastjóra að setja umrætt verkefni af stað og gefa almenningi þannig kost á að taka þátt í að tilnefna bæjarlistamann og menningarverðlaunahafa. Lagt er til að frestur til að skila inn tilnefningum á vefnum renni út þann 15. október nk. | ||
|
||
7. |
1009011 - Listaverkasafn Akraneskaupstaðar | |
Farið hefur fram skráning á listaverkasafni Akraneskaupstaðar og mat á verðmæti þess. | ||
Verkefnastjóri gerði grein fyrir þessari vinnu og helstu niðurstöðum. Skráningin er unnin af starfsmanni Kirkjuhvols og fólst í því að ljósmyndir voru teknar af öllum listaverkum í eigu bæjarins ásamt því að allar helstu upplýsingar um viðkomandi listaverk og listamenn voru skráðar. Gallerí Fold hafði umsjón með mati á listaverkasafninu. Stjórn Akranesstofu fagnar því að þessu verkefni skuli nú lokið og felur verkefnastjóra að kynna niðurstöður þess fyrir bæjarráði. | ||
|
||
8. |
1009018 - Garðakaffi | |
Erindi frá rekstraraðila Garðakaffis varðandi mál sem viðkomandi óskaði eftir að tekið yrði til afgreiðslu stjórnar. | ||
Stjórn Akranesstofu samþykkir að boða rekstraraðila Garðakaffis til viðræðna um málið á næsta fund stjórnar. Þorgeir lagði fram eftirfarandi bókun: "Undirritaður lýsir furðu sinni á að pólítískt kjörnir fulltrúar meirihlutans skuli samþykkja það með þögn sinni að nokkrir af æðstu embættismönnum Akraneskaupstaðar reyni að þagga niður húsbrot varabæjarfulltrúa Samfylkingarinnar í Garðakaffi þann 12.ágúst sl. þar sem hann, við annan mann, fjarlægði kaffivél. Kaffivél sem forstöðumaður Byggðasafnsins hafði gefið rekstraraðilum leyfi til að gera upp og nýta. Í framhaldi seldi síðan annar forstöðumaður hjá Akraneskaupstað þessa kaffivél til samkeppnisaðila Garðakaffis langt undir raunverði án þess að gefa rekstraraðilum Garðakaffis möguleika á að gera tilboð í vélina. Ég hlýt því að spyrja hvort meðferð málsins í bæjarkerfinu sé í anda ?gegnsærrar og heiðarlegrar stjórnsýslu? sem Samfylkingin boðaði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar?" Þorgeir Jósefsson Aðrir stjórnarmenn áskilja sér rétt til að bóka um málið á næsta fundi stjórnar. | ||
|